Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Langt á milli í viðræðum um bætur fyrir British Steel

Read Full Article →

Kínversk stjórnvöld hafa varað Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, um að þau muni grípa til aðgerða ef bresk stjórnvöld standa ekki vörð um lögvarða hagsmuni kínverskra fyrirtækja í tengslum við fyrirhugaða þjóðnýtingu British Steel. Starmer kynnti á mánudaginn áform um að þjóðnýta stálframleiðandann British Steel. Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp sem mun gera ríkinu kleift að taka formlega við eignarhaldi verksmiðju fyrirtækisins í Scunthorpe, sem hefur verið rekin með tapi upp á síðkastið. Breska ríkið tók við rekstri stálverksmiðjunnar í apríl 2025 til að koma í veg fyrir að starfsemin yrði stöðvuð og að fjölda starfsmanna yrði sagt upp. Sjá einnig Ætla að þjóðnýta British Steel Gert er ráð fyrir að kínverska fyrirtækið Jingye, sem keypti British Steel árið 2020, muni fara fram á hundruð milljóna punda í bætur vegna þjóðnýtingarinnar, að því er kemur fram í frétt The Telegraph. Jingye hefur átt í viðræðum við breska ríkið á síðustu vikum og fór upphaflega fram á einn milljarð punda eða um 165 milljarða króna í bætur. Kínverski eigandinn hafnaði á dögunum 100 milljóna punda tilboði breska ríkisins. Stálverksmiðja British Steel í Scunthorpe. © epa (epa) Í umfjölluninni segir að bótafjárhæðin óháður matsaðili og mögulega dómstólar muni nú taka við því verkefni að komast að niðurstöðu um bótafjárhæð í málinu. Viðskiptaráðuneyti Kína hefur sent frá sér tilkynningu þar sem bresk stjórnvöld eru vöruð við vanda til verka við ákvarðanatökur og „forðast að misnota stjórnsýslulegar þvingunaraðgerðir“.

Share this article