Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þjóðnýta stærstu stálverksmiðju Breta til að verja stáliðnað

Read Full Article →

Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að þjóðnýta stálframleiðandann British Steel og munu taka að fullu yfir taprekstur fyrirtækisins, sem áður var í kínverskri eigu. Markmiðið er að tryggja framtíð stálframleiðslu í Bretlandi, að sögn breskra stjórnvalda fyrr í dag. Fyrirtækið rekur síðasta stóra stálver Bretlands og framleiðir stál meðal annars fyrir járnbrauta-, bygginga- og bílaiðnaðinn er kemur fram í frétt Reuters. Sjá einnig ESB helmingar innflutningskvóta á stál Ráðstöfunin er ein af mörgum aðgerðum stjórnvalda til að styðja við breskan stáliðnað. Meðal annarra fyrirhugaðra aðgerða eru nýir tollar og kvótar sem eiga að verja greinina fyrir undirboðum á ódýru stáli, auk tollasamkomulags við Bandaríkin. „Ákvörðunin í dag tryggir framtíð stálframleiðslu í Bretlandi, verndar sérhæfð störf og varðveitir mikilvæga innlenda getu,“ sagði Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra. Breska ríkið tók yfir stjórn British Steel af kínverskum eigendum fyrirtækisins, Jingye, í apríl á síðasta ári. Tilgangurinn var að koma í veg fyrir lokun stálverksins í Norður-Englandi og verja 2.700 störf þar, auk þúsunda starfa í aðfangakeðjunni. Sjá einnig Langt á milli í viðræðum um bætur fyrir British Steel Á síðustu árum hefur reksturinn átt undir högg að sækja vegna hás orkukostnaðar í Bretlandi og offramboðs á stáli á heimsmarkaði. Peter Kyle viðskiptaráðherra sagði í samtali við Times Radio að ríkið eyddi meira en einni milljón punda á dag í að halda verksmiðjunni gangandi. „Við þurfum á þessari frumstálframleiðslu að halda, því ef hún hyrfi yrðum við háð alþjóðamörkuðum og birgðum frá öðrum löndum,“ sagði Kyle. Kyle áætlaði að stjórnvöld hefðu þegar varið 640 milljónum punda, eða um 108 milljörðum íslenskra króna, í að halda verksmiðjunni opinni. Hann sagði það vera breskum almenningi til hagsbóta en jafnframt þyrfti að tryggja að fyrirtækið ætti sér framtíð. Löggjöf sem heimilar stjórnvöldum að taka British Steel í sína eigu hlaut lokaafgreiðslu í gær, eftir að ríkinu tókst ekki að finna kaupanda að fyrirtækinu. British Steel var einkavætt í tíð Margaret Thatcher árið 1988. Samtök stáliðnaðarins í Bretlandi, UK Steel, sögðu þjóðnýtinguna rétta ákvörðun. Nú þyrfti hins vegar langtímaáætlun til að gera British Steel rekstrarhæft á ný.

Share this article