Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur tilkynnt um að ríkisstjórn Bretlands áformi þjóðnýta stálframleiðandann British Steel sem var einkavæddur árið 1988. Starmer segir að til standi að kynna lagabreytingar í vikunni sem heimili stjórnvöldum að taka við eignarhaldi British Steel. Áformuð þjóðnýting á stálframleiðandanum fylgir í kjölfar þess að bresk stjórnvöld tóku yfir stálverksmiðju British Steel í Scunthorpe af kínverska eigandanum Jingye í apríl 2025 til að koma í veg fyrir að starfsemin yrði stöðvuð. Hagsmunasamtök stáliðnaðarins, UK Steel, fagnaði tilkynningu ríkisstjórnarinnar. Framkvæmdastjóri þeirra sagði að með þessu yrðu störf 2.700 starfsmanna fyrirtækisins tryggð. „Opinbert eignarhald er í þágu almannahagsmuna,“ sagði Starmer í ræðu í dag þar sem hann reyndi að byggja upp aukinn meðbyr eftir slæmt gengi Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi í reynd verið með yfirráð yfir verksmiðjunni þá höfðu þau hingað til horft til þess að fá nýja fjárfesta að verkefninu en svo virðist sem það hafi ekki gengið eftir.