Jón Erik Sigurðsson keppti í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í morgun. 77 keppendur hófu leik og þar af voru átta sem ekki tókst að klára fyrri ferðina. Það gerði Jón Erik hins vegr og skíðaði niður á 1:21,61 mínútu. Hann var í 38. sæti eftir fyrri ferðina, 7,98 sekúndum á eftir þeim hraðasta, norska Brasilíumanninum Lucas Pinheiro Braathen. Í seinni ferðinni fara fyrstu 30 úr þeirri fyrri niður í öfugri röð þannig að Braathen skíðaði þrítugasti í röðinni. Eftir spennandi seinni ferð fyrstu 30 keppendanna stóð Braathen upp sem sigurvegari með besta samanlagðan tímann, 2:25,00 mínútur og varð hann 58 hundruðustu úr sekúndu á undan næsta keppanda, Marco Odermatt frá Sviss. Lenti upp á kant við norska sambandið Braathen vann þar með fyrstu gullverðlaun Brasilíu frá upphafi Vetrarólympíuleikanna. Hann á norskan föður og brasilíska móður og hefur áður keppt fyrir Noreg. Hann lenti hins vegar upp á kant við norska skíðasambandið og fór að keppa fyrir Brasilíu þar sem móðir hans býr nú. Eftir að 30 fremstu keppendur úr ferð höfðu lokið seinni ferðinni var farið eftir sætum úr fyrri ferð svo Jón Erik ræsti 38. í röðinni í seinni ferðinni. Brautin var á þessum tímapunkti orðin mjög krefjandi og fljótlega eftir að Jón Erik ræsti rann hann til og fór út úr brautinni. Jón Erik keppir næst í sterkustu greininni snini, svigi, á mánudaginn.