Orri Hauksson, fyrrverandi forstjóri Símans, hefur fest kaup á iðnfyrirtækinu Set á Selfossi ásamt Gunnari Fjalari Helgasyni. Hrafnarnir samgleðjast þeim félögum og ekki síst sunnlendingum, enda eitt sögufrægasta fyrirtæki svæðisins að fá inn öfluga eigendur með mikla stjórnendareynslu úr íslensku viðskiptalífi. Spenntastir eru þó hrafnarnir fyrir því að fylgjast með hvort að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, muni verða sérlegur áhugamaður um einangruð rör og plaströr. Eins og þekkt er virtist stofnun Páls Gunnars hafa horn í síðu Símans og Orra á meðan hann stýrði félaginu. Til að mynda var félaginu gert að selja samkeppnisaðilum aðgang að Enska boltanum í heildsölu, sem gerði þeim svo kleift að undirbjóða Símann. Hrafnarnir velta því fyrir sér hvort Páll Gunnar finni ekki leið til að heimfæra þá aðgerð á nýjan markað. Þannig gæti eftirlitið skyldað Set til að selja samkeppnisaðilum einangruð rör og plaströr í heildsölu á undirverði. Huginn og Muninn eru einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .