Eimskip og dótturfélagi þess, Faroe Ship, hefur borist tilkynning um verkfallsboðun frá Sjómannafélagi Íslands (SÍ) þar sem boðað er ótímabundið verkfall bátsmanna og háseta á eigin skipum félagsins, þ.e. Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi. Verkfallið hefst kl. 12 mánudaginn 25. maí, náist samningar ekki fyrir þann tíma, að því er segir í tilkynningu Eimskips til Kauphallarinnar. SÍ hafði áður boðað tímabundið verkfall 12.-15. apríl á eigin skipum félagsins en aflýsti því verkfalli þann 8. apríl síðastliðinn. Þá var tímabundnu verkfalli vegna hafnarverkafólks sem boðað var þann 13. apríl frestað til tímabilsins 26.-28. maí og stendur sú boðun enn. Samningaviðræður hafa verið í gangi á milli Samtaka atvinnulífsins, Eimskips og SÍ hjá ríkissáttasemjara þar sem tillögur hafa verið lagðar fram. Eimskip segist binda vonir við að samningar náist án þess að komi til boðaðra aðgerða. „Komi til verkfalls hafnarverkamanna í SÍ mun það draga úr afköstum í Sundahöfn á meðan á því stendur þar sem um 40% starfsfólks í hafnarvinnu er í SÍ. Komi til verkfalls á eigin skipum félagsins mun það hafa áhrif á siglingaáætlun og skerða þjónustu." Í tilkynningunni er bent á að samkomulag við félagsmenn SÍ á skipum félagsins hafi runnið út um síðustu áramót. Eimskip segir samkomulagið hafa tekið breytingum á gildistíma í takt við umsamdar launabreytingar á almennum vinnumarkaði, eða svokölluðum stöðugleikasamningi, auk þeirra viðbótar hækkana sem gerðar voru sérstaklega fyrir viðkomandi störf. Eimskip segist leita allra leiða til að takmarka áhrif hugsanlegra verkfalla á þjónustu við viðskiptavini. Viðskiptavinum verði haldið upplýstum um stöðuna eftir því sem málum vindur fram.