Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verk­fall hafið á skipum Eim­skips

Read Full Article →

Ótíma­bundið verk­fall há­seta og báts­manna í Sjómannafélagi Ís­lands á eigin skipum Eim­skips hófst á há­degi í gær. Verk­fallið nær til skipanna Brúar­foss, Detti­foss og Sel­foss. Þetta kemur fram í til­kynningu Eim­skips til Kaup­hallarinnar. Félagið segir að samningar hafi ekki tekist áður en verk­fallið hófst og að viðræður um laun og kjör há­seta og báts­manna standi enn yfir með milli­göngu ríkissátta­semjara. Sjómannafélag Ís­lands boðaði verk­fallið um miðjan maí og átti það að hefjast á há­degi mánu­daginn 25. maí næðust samningar ekki fyrir þann tíma. Við­skipta­blaðið fjallaði þá um að verk­fallið myndi ná til eigin skipa Eim­skips, Brúar­foss, Detti­foss og Sel­foss, og að félagið teldi að slíkar að­gerðir myndu hafa áhrif á siglingaáætlun og skerða þjónustu. Eim­skip segir í til­kynningunni nú að verk­fallið muni hafa áhrif á siglingaáætlun og þjónustu félagsins. Félagið hafi unnið mark­visst að því að undir­búa þessa sviðs­mynd til að lág­marka truflanir á þjónustu við við­skipta­vini eins og kostur sé. Hafnar­starf­semi og önnur starf­semi Eim­skips er hins vegar í eðli­legum far­vegi. Í síðustu viku náðist sam­komu­lag milli Sam­taka at­vinnulífsins, fyrir hönd Eim­skips, og Sjómannafélags Ís­lands vegna hafnar­verka­fólks í Sunda­höfn og var boðuðu verk­falli þar aflýst. Áður hafði Sjómannafélagið boðað tíma­bundið verk­fall há­seta og báts­manna á eigin skipum Eim­skips 12. til 15. apríl, en því verk­falli var aflýst 8. apríl. Einnig hafði verið boðað til tíma­bundins verk­falls hafnar­verka­fólks, sem var síðar frestað, áður en sam­komu­lag náðist í síðustu viku. Í fyrri til­kynningu Eim­skips kom fram að sam­komu­lag við félags­menn Sjómannafélags Ís­lands á skipum félagsins hefði runnið út um síðustu áramót. Félagið sagði þá að sam­komu­lagið hefði tekið breytingum á gildistímanum í takt við um­samdar launa­breytingar á al­mennum vinnu­markaði, auk viðbótar­hækkana sem gerðar voru sér­stak­lega fyrir viðkomandi störf. „Eim­skip þykir miður að samningar hafi ekki náðst áður en til verk­falls kom og vonast til að samningar náist sem fyrst,“ segir í til­kynningu félagsins. Eim­skip segir að við­skipta­vinum verði áfram haldið upp­lýstum eftir því sem málum vindur fram. Sjá einnig Eimskip tapaði 680 milljónum á fyrsta fjórðungi

Share this article