Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verkfalli aflýst

Read Full Article →

Eimskipafélag Íslands hf., fyrir hönd P/f Faroe Ship, og Sjómannafélag Íslands hafa undirritað samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á skipum félagsins. Verkfallið náði til þriggja skipa Eimskips, Brúarfoss, Dettifoss og Selfoss. Undirbúningur fyrir brottfarir skipanna hefst þegar í stað og gert er ráð fyrir að öll skip félagsins verði komin á áætlun í næstu viku. Í tilkynningu kemur fram að Eimskip hafi mikla trú á sjómannastéttinni og langvarandi reynslu af starfi sjómanna, hæfni þeirra, dugnaði og áræðni. Félaginu sé mikilvægt að halda því rótgróna sambandi áfram, vinna að framgangi stéttarinnar og lyfta henni upp.

Share this article