Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vaxtastökk blasir við dönskum íbúðar­eig­endum

Read Full Article →

Þúsundir danskra íbúðar­eig­enda með breyti­lega vexti standa frammi fyrir veru­legri hækkun greiðslu­byrði þegar vextir á lánum þeirra verða endur­stilltir 1. júlí. Margir tóku lán fyrir fimm árum þegar vaxta­stigið var sögu­lega lágt og vextirnir nálægt núlli. Nú er staðan allt önnur. Sam­kvæmt Børsen gætu vextir hjá hluta þeirra hækkað úr nánast engu í um 3%. Það getur breytt heimilis­bók­haldinu veru­lega. Hjá sumum verður vaxta­kostnaðurinn einn orðinn svipaður og öll fyrri mánaðar­leg greiðsla, þegar bæði vextir og af­borganir voru taldar með. Skipta um banka og hætta að greiða niður lánið Børsen tekur dæmi af Johan Prisak, fram­leiðslu­stjóra hjá Siemens, sem býr með fjöl­skyldu sinni í Ála­borg. Síðustu fimm ár hefur húsnæðislán hans borið aðeins 0,041% vexti. Því hefur stærstur hluti greiðslna fjöl­skyldunnar farið í að greiða niður skuldina. Nú hefur fjöl­skyldan ákveðið að endur­skipu­leggja fjár­málin. Hún ætlar að skipta um banka, taka lán með vöxtum sem breytast oftar og velja af­borgunar­leysi um tíma. Með því greiðir fjöl­skyldan aðeins vexti og gjöld, en ekki af höfuðstól lánsins. Skuldin lækkar því ekki á meðan, en mánaðar­leg greiðslu­byrði verður léttari. „Við eigum þrjú ung börn og því hefur skipt máli að há­marka ráðstöfunarféð í hverjum mánuði,“ segir Prisak við Børsen. Hann segir jafn­framt að meiri sveigjan­leiki skipti máli. Með nýja láninu geti fjöl­skyldan brugðist hraðar við ef vextir breytast mikið. Hvernig danski markaðurinn virkar Danski húsnæðislána­markaðurinn er frábrugðinn þeim ís­lenska. Hefðbundin dönsk fast­eigna­lán eru að stórum hluta fjár­mögnuð með út­gáfu sér­tryggðra skulda­bréfa. Í ein­földu máli þýðir það að þegar lán­taki fær húsnæðislán er það fjár­magnað á skulda­bréfa­markaði. Kjörin ráðast því af því hvaða ávöxtunar­kröfu fjár­festar gera til bréfanna. Þegar vextir á markaði hækka skilar það sér til þeirra lán­taka sem eru með lán þar sem vextir eru endur­stilltir reglu­lega. Sumir fá nýja vexti ár­lega, aðrir á nokkurra ára fresti. Sjá einnig Danska krónan aldrei verið veikari gagn­vart evru Um 15 þúsund við­skipta­vinir Tota­l­kredit fá nýja vexti á lán sín 1. júlí. Vextirnir verða ákveðnir í út­boði á markaði 19. maí. Óheppi­leg tíma­setning Vaxta­breytingin kemur á erfiðum tíma fyrir lán­taka. Óvissa í Mið-Austur­löndum og hærra olíu­verð hafa aukið verðbólguótta á mörkuðum. Þegar fjár­festar óttast að verðbólga verði þrálátari hækka vextir á skulda­bréfa­mörkuðum, og það hefur áhrif á danska húsnæðislána­markaðinn. Sune Malthe-Thagaard, aðalgreinandi Totalkredit. Sune Malt­he-Thaga­ard, aðal­greinandi hjá Tota­l­kredit, segir við Børsen að nokkrir danskir húsnæðislána­vextir hafi hækkað um 0,5 pró­sentur frá lokum febrúar. „Þetta er dálítið óheppi­leg tíma­setning fyrir íbúðar­eig­endur sem fá nýja vexti á lán sín 1. júlí,“ segir hann. Sveigjan­leiki eða öryggi Málið sýnir þann vanda sem margir danskir lántakar standa nú frammi fyrir. Þeir geta valið meiri fyrir­sjáan­leika og bundið vexti lengur, en þá oft á hærri kjörum. Eða þeir geta valið meiri sveigjan­leika og vonast til að vextir lækki aftur, en tekið á sig meiri áhættu ef vextir halda áfram að hækka. Af­borgunar­leysi getur létt greiðslu­byrði til skamms tíma, en það leysir ekki vandann til lengri tíma. Skuldin stendur áfram óbreytt. Fyrir danska íbúðar­eig­endur sem tóku lán á tímum nær engra vaxta er nýr veru­leiki því að taka við. Peningar kosta aftur.

Share this article