Samstæða Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði hagnaðist um tæplega 1,3 milljarða króna á síðasta ári en til samanburðar nam hagnaður ársins 2024 659 milljónum króna. Rekstrartekjur samstæðunnar drógust þó saman á milli ára og námu tæplega 15 milljörðum í fyrra, samanborið við tæplega 16 milljarða árið áður. Brúttótekjur, þ.e. tekjur að meðtalinni sölu innan félagsins, námu 18,7 milljörðum og lækkuðu um tæp 1,3% á milli ára. Í ársskýrslu Loðnuvinnslunnar segir að afkoma ársins hafi verið umfram væntingar miðað við þær áskoranir sem blöstu við í upphafi árs þegar fyrir lá að ekki yrði loðnuvertíð. „Góð makríl- og síldarvertíð og hækkandi bolfiskverð styrktu vel við reksturinn. Í lok árs hækkaði einnig verð loðnuhrogna en félagið átti þá enn nokkuð af hrognum í birgðum.“ Í upphafi árs hafi verið verulegar hrognabirgðir í eigum félagsins sem og annara framleiðenda á Íslandi. „Þegar í ljós kom að engin loðnuvertíð yrði á árinu tóku sölur við sér en vegna hárrar birgðastöðu var áfram verðþrýstingur stóran hluta af árinu. Þegar líða tók á haustið höfðu birgðir lækkað töluvert og vísbendingar voru um að loðnuvertíðin 2026 yrði óveruleg. Meiri spenna kom í markaðinn og verð fóru loks að taka við sér. Um áramót voru aðeins um 350 tonn af hrognum í birgðum og voru þau komin í sölusamninga á góðum verðum áður en kvóti ársins 2026 var gefin út. Við sölu loðnuhrogna innleysti félagið ágæta framlegð og losaði samhliða því um verulega fjármuni sem nýttir hafa verið til að greiða upp rekstrarlán og standa straum að ýmsum fjárfestingum,“ segir í ársskýrslu. Þá er komið inn á tilkynningu á haustmánuðum um niðurskurð í makríl um 70% á árinu 2026 og í kolmunna um tæp 40%. Þessi niðurskurður muni bitna verulega á Loðnuvinnslunni á árinu 2026 og þyngja róður uppsjávarhlutans sem treysti mjög á aflaheimildir í þessum tegundum. Samhliða minnkun aflaheimilda í kolmunna muni samkeppni um ytra hráefni aukast verulega með fyrirsjáanlegum afleiðingum á verkefnastöðu og almenna nýtingu rekstrarfjármuna. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .