Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans, gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndar að hækka stýrivexti á opnum fundi í húsnæði Seðlabankans kl 9:30. Í yfirlýsingu nefndarinnar segist hún tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum. Sjá einnig Hækka stýrivexti upp í 7,75% Hún benti einnig á að verðbólga hafi verið yfir 5% það sem af er ári og vísað í nýbirta spá bankans þar sem horfur eru á minni hagvexti og meira atvinnuleysi en spáð var í febrúar. Nefndin sagði að efnahagsaðstæður gætu þróast til verri vegar ef truflanir á alþjóðlegum olíumarkaði vara lengur en nú sé gert ráð fyrir eða ef kjarasamningum verði sagt upp síðar á árinu.