Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans, gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndar að hækka stýrivexti á opnum fundi í húsnæði Seðlabankans kl 9:30. Þetta var þriðja stýrivaxtahækkun Seðlabankans á á árinu. Í yfirlýsingu nefndarinnar vísaði hún til mikillar verðbólgu, sem hefur mælst yfir 5% í ár, og hárra verðbólguvæntinga.