Innlent | mbl | 20.5.2026 | 10:45 „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Samtök atvinnulífsins hafa lagt áherslu á samtal við stjórnvöld og launþegahreyfinguna sem vonast er til að skili einhverjum árangri til skemmri og lengri tíma. Samsett mynd/mbl.is/Karítas Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Var skárri en ekkert fyrir neytendur » Fleiri tengdar fréttir Fjármálakerfi Íslands hefur í raun tapað heilu ári þar sem vextir eru orðnir eins og þeir voru fyrir um það bil ári síðan, þegar kerfið var í vaxtalækkunarferli, og hækkun stýrivaxta bætist ofan á ástand sem erfitt verður fyrir hagstjórnaraðila að eiga við. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, lýsa áhyggjum af alvarlegri stöðu í íslensku fjármálakerfi í samtali við mbl.is. Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig hafi verið viðbúin enda hafi einfaldlega ekki tekist að koma böndum á verðbólgu og verðbólguvæntingar. Það verði mjög erfitt að eiga við þetta ástand Þessi vaxtahækkun kemur ofan í þegar erfitt ástand og eru verulegar áhyggjur farnar að myndast innan SA af samkeppnishæfni íslenskra útflutningsgreina. „Atvinnurekendur eru orðnir mjög uggandi þvert á atvinnugreinar og það eru uppi sérstaklega varhugaverðar aðstæður þar sem verðbólga er þrálát á sama tíma og við sjáum að það er að hægja mjög um í hagkerfinu. Það verður mjög erfitt fyrir hagstjórnaraðila að eiga við þetta ástand,“ segir hún. „Við sjáum í könnunum að væntingar fara ört versnandi. Fjárfestingaráform eru að dragast saman og atvinnuleysi er að aukast. Launakostnaður er orðinn sá hæsti í Evrópu og gengi krónunnar er sterkt. Við teljum að það ætti að vera forgangsmál hjá stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins að efla stöðu íslenskra fyrirtækja á alþjóðlegum vettvangi.“ Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig „Þetta eru að verða töluverð uppsöfnuð áhrif“ Bjarni tekur undir með Önnu og bætir við að það séu mikil vonbrigði að fjármálakerfið sé eiginlega búið að tapa heilu ári vegna þess að vextir séu aftur orðnir eins og þeir voru fyrir um það bil ári síðan, en þá hafi kerfið verið í vaxtalækkunarferli. „Þetta er alvarlegt vegna þess að háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif. Þetta eru að verða töluverð uppsöfnuð áhrif,“ segir Bjarni. „Þegar við horfum upp á að nokkrar lykilstéttir eru með lausa samninga og hefur ekki gengið nógu vel að leysa úr því, þá er staðan smám saman að verða mikið áhyggjuefni, sem er ástæðan fyrir því að Samtök atvinnulífsins hafa lagt áherslu á samtal við stjórnvöld og launþegahreyfinguna, sem er að hefjast. Við verðum að vonast til þess að það skili einhverjum árangri, bæði til skemmri og lengri tíma.“ Áhersla stjórnvalda á skattahækkanir mjög sérstök Aðspurð segir Anna margt hafa áhrif á slæma stöðu fjármálakerfisins. „Óvissa vegna stríðsátaka vegur auðvitað þungt en við sjáum það aftur á móti í peningamálum hjá Seðlabankanum að það er líka verið að varpa kastljósinu á vinnumarkaðinn og þar er að finna mjög áhugaverðar rammagreinar um þátt launaþróunar í verðbólgunni, greiningar á svigrúmi til launahækkana,“ segir hún. Samtökin hafi samið um launahækkanir í langtímasamningum í trú um að verðmætasköpun myndi standa undir þeim, en það sé ekki að raungerast. Framleiðni og verðmæti hafi ekki aukist í takti við það sem vonir stóðu til um. „Okkur þykir mjög sérstakt að stjórnvöld séu að leggja áherslu á skattahækkanir á atvinnulífið og við erum að sjá fyrirætlanir um tugmilljarða skattahækkanir í nýrri fjármálaáætlun ofan á þær sem þegar hafa verið framkvæmdar,“ segir Anna. „Þetta er síst til þess fallið að bæta stöðu íslenskra fyrirtækja eða efla verðmætasköpun sem við þurfum sárlega á að halda við þessar kringumstæður.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Var skárri en ekkert fyrir neytendur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til Hefur farið hamförum í úrslitakeppninni Oddvitarnir hittast allir á fundi í dag „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi Umræðan Fræðsla umfram frasa Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 25 punktar muni merja sigurinn á morgun ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Öryggistilfinning bæjarbúa undir Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Andlát: Elín R. Líndal Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Vara við svikapóstum í nafni Skattsins „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Öryggistilfinning bæjarbúa undir Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Blóðugur reikningur á Tenerife Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Nýjast á mbl.is » Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til Hefur farið hamförum í úrslitakeppninni Oddvitarnir hittast allir á fundi í dag „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi Umræðan Fræðsla umfram frasa Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Andlát: Elín R. Líndal Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Vara við svikapóstum í nafni Skattsins „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Öryggistilfinning bæjarbúa undir Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Blóðugur reikningur á Tenerife Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni