Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hvers vegna eru vextir svona háir?

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 2.7.2026 | 10:26 Hvers vegna eru vextir svona háir? Ásgeir Jónsson og Þórarinn G. Pétursson hafa ítrekað bent á fílinn í herberginu, þ.e. miklar launahækkanir. mbl.is/Karítas Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Segir utanaðkomandi áhrif valda verðbólgu Rekur hækkunina til átaka í Mið-Austurlöndum Flugfargjöld halda verðbólgunni í föstum skorðum „99,99% líkur á forsendur kjarasamninga bresti“ „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ » Fleiri tengdar fréttir Þótt Ísland komi afar vel út í nær öllum samanburði á lífskjörum við lönd Evrópusambandsins (ESB) þá hefur vaxtastig á Íslandi verið hærra en á meginlandinu. Af umræðunni að dæma mætti stundum halda að hið háa vaxtastig væri allt krónunni að kenna og að það mætti leiðrétta með þeim einfalda hætti að ganga í ESB og taka upp evru. Það er auðvitað ekki rétt. Í umræðunni allri skiptir máli að fólk átti sig á því hvers vegna vaxtastig hefur verið hátt á Íslandi og hærra en á evrusvæðinu. Vaxtastig ræðst auðvitað af flóknu samspili ýmissa hagbreyta, en Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi hjá Kontext ehf., hefur tekið saman gögn sem skýra stöðuna hér á landi að minnsta kosti að verulegu leyti. Launahækkanir og verðbólga Konráð segir háa vexti hér á landi hafa sögulega verið fylgifisk mikillar verðbólgu, hárra verðbólguvæntinga og framleiðsluspennu. Framleiðsluspenna segir til um hvort hagkerfið sé að framleiða meira eða minna en það getur gert til lengri tíma án þess að skapa verðbólguþrýsting. Jákvæð framleiðsluspenna gefur til kynna að hagkerfið sé að framleiða meira en það ræður við til lengri tíma án þess að skapa verðbólguþrýsting. Hann segir vandann einkum liggja í verðbólgunni, sem hann kallar „skilgetið afkvæmi“ launahækkana umfram það sem verðbólgumarkmið og framleiðniþróun leyfa. Gögn Konráðs sýna skýrt jákvætt samband milli verðbólgu og launahækkana í ríkjum Evrópu og OECD þegar tímabilið 1995-2024 er skoðað. Í löndum þar sem launakostnaður hefur hækkað meira hefur verðbólga einnig verið meiri. Ísland fellur að þessu mynstri og er ekki sérstakt frávik; verðbólga hér á landi hefur verið í samræmi við launaþróun. Skýrt samband Enn gagnlegra er að skoða þetta samband á grundvelli verðlags landsframleiðslu, sem tekur tillit til viðskiptakjara, ólíkt neysluverðlagi, sem gefur því heildstæðari mynd af verðþróun í hagkerfinu. Þetta samband er sýnt myndrænt hér efst á síðunni. Sambandið kemur skýrt fram hvort sem horft er til langs tímabils frá 1995-2024 eða síðasta áratugar. Á sama tíma og Ísland hefur verið meðal þeirra ríkja sem búa við meiri verðbólgu en flest önnur Vestur-Evrópuríki hafa laun hér á landi hækkað mun meira. Í ljósi launaþróunar er það ekki óvenjulegt í alþjóðlegum samanburði að verðbólga sé meiri og að það leiði til hærra vaxtastigs. Eins og sjá má á myndunum fylgja öll lönd þessu sambandi vel til skemmri og lengri tíma, fyrir utan Írland, en það birtist á myndinni sem sýnir sambandið til skemmri tíma sem útlagi, en Konráð bendir á að fjölgun alþjóðlegra fyrirtækja í landinu hafi skekkt þróun verðvísitölu landsframleiðslu. Þegar allt kemur til alls eru engin landanna með litla verðbólgu á sama tíma og launahækkanir eru miklar. Eins eru engin lönd með mikla verðbólgu þar sem launahækkanir hafa verið litlar. Evran ekki töfralausn Upptaka annars gjaldmiðils mun ekki leysa þennan vanda. Raunar er það svo að upptaka evru krefst þess að þessi vandi sé leystur áður en Ísland gengur inn í myntbandalagið, ef til þess kæmi. Til þess að ná vaxtastigi niður hér á landi til lengri tíma er einkum tvennt sem þarf til, annars vegar agaðri ríkisfjármál og hins vegar að launaþróun fari ekki fram úr því sem hagkerfið ræður við á hverjum tíma. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri hafa við vaxtaákvörðun peningastefnunefndar ítrekað bent á að launahækkanir á íslenskum vinnumarkaði séu ein stærsta áskorunin. Í ræðu sinni á ársfundi Seðlabanka Íslands fyrr á árinu sagði Ásgeir: „Ef svo færi að evran yrði gjaldmiðill hér í kjölfar aðildar að Evrópusambandinu og Íslendingar héldu uppteknum hætti við að hækka laun sín umfram það sem þekkist hjá öðrum þjóðum, þá myndi það leiða til mjög alvarlegra efnahagserfiðleika og sársaukafullrar aðlögunar.“ Hann sagði mikilvægt að umræða um gjaldeyrismál og Evrópusambandið færi málefnalega fram. Hann benti á að vandamál á íslenskum vinnumarkaði myndu ekki leysast sjálfkrafa með nýjum gjaldmiðli, enda tæki ESB ekki ábyrgð á efnahagsmálum aðildarríkja, þau yrðu áfram á ábyrgð Íslendinga. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra tók í sama streng í grein sinni og síðan viðtali við Morgunblaðið í síðasta mánuði. Hann sagði þar að þótt evran hefði ýmsa kosti til að bera þá væri hún engin töfralausn. Upptaka evru krefðist þess að vinnumarkaðslíkaninu yrði breytt, en það þyrfti að hans mati að gera óháð spurningunni um gjaldmiðlamál. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Segir utanaðkomandi áhrif valda verðbólgu Rekur hækkunina til átaka í Mið-Austurlöndum Flugfargjöld halda verðbólgunni í föstum skorðum „99,99% líkur á forsendur kjarasamninga bresti“ „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hvers vegna eru vextir svona háir? Sögðu frá andláti föður þjálfarans á miðjum fundi Hlutfall leikskólakennara 21,3% árið 2024 Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni Flugmaðurinn glímdi við andleg veikindi Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni „Það þarf ekkert að hvíla stálið“ Mistök gerð við kynfræðslu ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Greinilega mikið ósamræmi Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Drengurinn fundinn heill á húfi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Hvers vegna eru vextir svona háir? Sögðu frá andláti föður þjálfarans á miðjum fundi Hlutfall leikskólakennara 21,3% árið 2024 Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni Flugmaðurinn glímdi við andleg veikindi Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fimm látnir í Belgíu: „Gríðarlega svartur reykur“ Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Greinilega mikið ósamræmi Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Drengurinn fundinn heill á húfi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið

Share this article