Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Breyttu skipulagi tólf sinnum á níu árum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.5.2026 | 13:00 Breyttu skipulagi tólf sinnum á níu árum Skýrslan varpar ljósi á að ábyrgð og boðleiðir voru ekki skýrar. mbl.is/Karítas Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vöruhús við Álfabakka 2 Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Ýmsir ágallar á verklagi „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Óboðlegur sveigjanleiki Engin starfsemi hafin í „græna gímaldinu“ » Fleiri tengdar fréttir Í drögum að skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar (IER) um skipulagsferlið við græna gímaldið, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, kemur fram að mikið sé um óskýr hlutverk stofnana innan borgarkerfisins og leggur IER fram tillögur um úrbætur. Skrifstofa undir nafninu Athafnaborgin Reykjavík hafði það hlutverk að skapa tekjur fyrir borgina og hluti af þeirri tekjuöflun var að selja lóðir. Athafnaborgin sem var til húsa í Ráðhúsinu heyrði beint undir borgarstjóra og var innan stjórnkerfisins kölluð dótakassi borgarstjórans, þótt það sé ekki orðað með þeim hætti í skýrslunni. Eftir að vöruhúsið reis og í ljós kom hvað í raun hafði gerst var Athafnaborgin Reykjavík lögð niður. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var töluverður rígur á milli Athafnaborgarinnar og umhverfis- og skipulagssviðs (USK) sem taldi Athafnaborgina fara of oft á svig við starfssvið sitt, á kostnað sviðsins og ráðsins. Athafnaborgin hét áður skrifstofa eigna og atvinnuþróunar og var áberandi í umræðunni um braggamálið svokallaða þar sem framkvæmdir fóru mörg hundruð milljónir fram yfir kostnaðaráætlun. Ekki á skrá stofnunarinnar Svo virðist vera að Athafnaborgin Reykjavík sem eins og áður sagði heyrði beint undir borgarstjóra hafi í raun klæðskerasniðið lóðina að Álfabakka 2a fyrir þá starfsemi sem þar er áformuð með ítrekuðum breytingum á deiliskipulagi sem urðu til þess að skilmálar um útlit og umfang mannvirkja á lóðinni urðu smám saman óljósari. Í skýrslunni kemur fram að deiliskipulagi lóðarinnar var breytt 12 sinnum á 9 árum og að slíkur fjöldi breytinga geti torveldað yfirferð, samanburð og túlkun á upprunalegu skipulagi. Eins kemur fram að þeir aðilar sem unnu síðustu deiliskipulagsbreytinguna fyrir Álfabakka 2a hafi ekki verið skráðir á lista Skipulagsstofnunar yfir aðila sem hafa heimild til að gera skipulagsáætlanir. IER bendir á að fundargerðum hafi verið breytt eftir á, en í frétt Morgunblaðsins frá 23. maí 2025 var greint frá því að Reykjavíkurborg hefði tekið fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, með umsögn um kjötvinnslu í vöruskemmunni við Álfabakka, út af heimasíðu sinni á miðvikudag, breytt henni og birt aftur daginn eftir. Heiða Björg Hilmisdóttir sagði í viðtali við Morgunblaðið af því tilefni að textinn hefði verið tekinn út, þar sem hann þótti ekki málefnalegur. „Við verðum auðvitað að vera með skýr skilaboð til uppbyggingaraðila um hvaða gæðum og fegurð við erum að sækjast eftir. En um leið er fegurð bara afstæð og hverjum þykir hvað fagurt. Og okkur fannst þetta ekki alveg málefnalegt innlegg,“ sagði Heiða. Sögðu ósatt um hæðir hússins Á auglýsingatíma deiliskipulagstillögunnar barst ein athugasemd frá íbúum við Árskóga 7 þar sem lýst var áhyggjum af fyrirhugaðri byggingu. Í skýrslu IER kemur fram að umsögn embættis skipulagsfulltrúa um athugasemdina sé á þá leið að nánast megi fullyrða að ekki verði byggt fimm hæða hús á lóðinni. Morgunblaðið birti 13. desember 2024 bréf skipulagsfulltrúans til íbúa um að nýtingarhlutfall væri um 1,0 og byggingarmagnið myndi ná einni og hálfri hæð við húsvegginn við Árskóga 7. Á auglýsingatímanum sumarið 2022 reyndist auglýsing í Fréttablaðinu gölluð þar sem hún var auglýst undir tillögum að breyttu deiliskipulagi og hverfisskipulagi í Reykjavík undir millifyrirsögninni „Bryggjuhverfi dælustöð“. Kynning á deiliskipulagsbreytingunum árið 2022 var því ekki í samræmi við lög, sem takmarkaði enn frekar möguleika íbúa á svæðinu og hagsmunaaðila til að gera athugasemdir við skipulagsferlið. Það er álit IER að í ljósi þess hvernig auglýsing breytingarinnar birtist í Fréttablaðinu hefði átt að auglýsa málið upp á nýtt til að gefa mögulegum hagsmunaaðilum tækifæri til að kynna sér efni skipulagstillögunnar. Vantaði vönduð vinnubrögð Við yfirferð IER kom í ljós að skipurit og verkferlar USK endurspegluðu ekki nægjanlega raunverulega ábyrgð og boðleiðir. Verkefnastjórar störfuðu innan óljóss stjórnskipulags, mönnun var á viðkvæmu stigi og innleiðing gæðakerfis hafði gengið hægt. Heildarniðurstaða IER leiðir í ljós að ýmsir þættir stjórnsýslu hefðu mátt vera markvissari, skýrari og betur skjalfestir. Sérstaklega hefði mátt leggja meira upp úr skýrari skilmálum, vandaðri vinnubrögðum við gerð skipulagsgagna og betri yfirsýn yfir umfangsmikil leyfisferli. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vöruhús við Álfabakka 2 Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Ýmsir ágallar á verklagi „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Óboðlegur sveigjanleiki Engin starfsemi hafin í „græna gímaldinu“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Einum hring frá miklum áfanga Sjálfstæðisflokkurinn í viðræðum til vinstri Hjón handtekin sökuð um njósnir fyrir Kína Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Vestmannaeyjar verða bragðmiðja landsins um helgina Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Fyrirtæki verði að láta af óþörfum verðhækkunum Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Blóðugur reikningur á Tenerife Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Nýjast á mbl.is » Einum hring frá miklum áfanga Sjálfstæðisflokkurinn í viðræðum til vinstri Hjón handtekin sökuð um njósnir fyrir Kína Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Vestmannaeyjar verða bragðmiðja landsins um helgina Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Oddvitarnir hittast allir á fundi í dag Hægt landris og lítil skjálftavirkni Við viljum finna skjól og öryggi Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Blóðugur reikningur á Tenerife Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar

Share this article