Innlent | mbl | 26.6.2026 | 17:00 Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Miklar breytingar voru gerðar á skipulagi Ráðhúss Reykjavíkur í gær. Samsett mynd/mbl.is/Karítas Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Sumar af þeim skipulags- og hagræðingaraðgerðum sem borgarráð samþykkti í gær hefði Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, viljað ráðast í í borgarstjórnartíð sinni en tillögurnar nutu ekki stuðnings samstarfsflokka hans í þáverandi meirihluta. Meðal breytinga sem Einar vildi ráðast í voru á mannréttindaskrifstofu borgarinnar. „Ég hafði ýmsar hugmyndir um að gera breytingar á skrifstofunni í ráðhúsinu sem nutu ekki stuðnings samstarfsflokka minna í meirihlutanum. Meðal annars breytingar á mannréttindaskrifstofunni, svo dæmi séu tekin,“ segir Einar í samtali við mbl.is. Einar var í meirihlutasamstarfi með Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum frá 2021 og þar til hann sleit meirihlutasamstarfinu í febrúar 2025 vegna ágreinings milli stjórnarflokkanna. Borgarráð samþykkti í gær umfangsmiklar breytingar á skipulagi borgarinnar þar sem skrifstofa samskipta og viðburða, mannréttindaskrifstofa borgarinnar og stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra voru lögð niður. Átján manns var sagt upp störfum og níu störf voru færð milli sviða. Frétt af mbl.is Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Fleiri breytinga að vænta Aðspurður segir Einar að oddvitar meirihlutans hafi staðið saman að þessari ákvörðun þó að alltaf sé sársaukafullt að segja upp starfsfólki. „Okkur þótti rétt að byrja í ráðhúsinu, okkur næst, en eins og við höfum kynnt í okkar meirihlutasáttmála þá er brýnt að ráðast í hagræðingaraðgerðir og skipulagsbreytingar á sviðum borgarinnar í því skyni að bæta rekstur borgarinnar en um leið bæta þjónustu við borgarbúa,“ segir Einar. Má þá skilja að fleiri uppsagnir eða tilfærslur á störfum séu væntanlegar? Þá ekki bara í Ráðhúsinu heldur líka á skrifstofum borgarinnar? „Já, við höfum talað opinskátt um það og erum með sérstaka vinnu í gangi, þ.e. starfshóp sem snýr að hagræðingu og skipulagsbreytingum.“ „Við í Framsókn komum inn í þá vinnu með tillögur sem við náðum ekki að knýja í gegnum síðasta meirihluta sem við vorum í. Þannig að þetta eru mikið tilbúnar tillögur sem við erum tilbúin til að fylgja eftir. Þannig að eðli máls samkvæmt er breytinga að vænta á sviðunum líka,“ segir Einar og bætir við að aðgerðirnar miði að því að vernda framlínuþjónustuna, bæta þjónustu og draga úr sóun í kerfinu. Frétt af mbl.is Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins borgarstjóri, Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar mbl.is/Eggert Jóhannesson Dusta rykið af gömlum tillögum Einar segir að hann hefði einnig viljað ráðast í breytingar á þjónustuskipulagi í hverfum borgarinnar í síðasta meirihluta og fækka þjónustumiðstöðvum sem eru á fjórum stöðum í borginni í dag. „Það eru sífellt færri sem koma inn í þessar miðstöðvar. Rafrænar lausnir hafa aukist mjög og sífellt færri sem mæta í þessar miðstöðvar. Rafræn þjónusta hefur aukist mjög og við höfum flutt tillögur í borgarstjórn, þegar við vorum í minnihluta, um að stofna fjölskyldumiðstöð þar sem við veitum börnum og fjölskyldum í borginni skilvirka þjónustu. Við erum að dusta rykið af þessum tillögum okkar Framsóknarmanna frá því á síðasta kjörtímabili og erum að uppfæra þær með hliðsjón af áherslum þessa meirihluta.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Elstur til að vinna leik á HM Ungbarn lést eftir björgun úr bíl Myndskeið: Hollenski framherjinn í stuði Ekki fleiri gjaldfrjálsar strætóferðir fyrir 12 til 16 ára Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitabylgjan skellur með fullum þunga á Danmörku Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Sýndu óvart nöfn Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Borgin viðurkennir veruleg mistök „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Elstur til að vinna leik á HM Ungbarn lést eftir björgun úr bíl Myndskeið: Hollenski framherjinn í stuði Ekki fleiri gjaldfrjálsar strætóferðir fyrir 12 til 16 ára Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytingarnar of hraðar og aggressívar Hitabylgjan skellur með fullum þunga á Danmörku Gögn í virkri rannsókn birt á netinu Sýndu óvart nöfn Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Borgin viðurkennir veruleg mistök „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku