Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Borgin á ekki fyrir útgjöldum

Read Full Article →

Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins var myndaður í lok maí en Hildur Björns­dóttir tók formlega við sem borgarstjóri í byrjun júní. Hildur var sjálf í stjórnarandstöðu í átta ár, þar af sem oddviti Sjálfstæðisflokksins síðastliðin fjögur ár. Að hennar sögn getur það að vera í minnihluta verið ergileg staða, þar sem góðar hugmyndir og lausnir hljóta oft ekki framgang. Nú sé tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif. „Það er kostur í minni stöðu að hafa þessa reynslu að baki. Ég kem inn í þetta með ­nokkuð fullmótaða hugmynd um hvað mér finnst við eiga að gera og hvað er raunhæft að gera, þannig að við getum ­gengið nokkuð rösklega til verks,“ ­segir Hildur. Mörg ný andlit eru í borgarstjórn, sem Hildur lítur á sem kost fremur en ókost, en þau komi inn með reynslu úr atvinnulífinu og samfélaginu öllu. „Þau koma inn með ferska sýn og eru með vakandi auga fyrir ýmsu sem aðrir hafa kannski orðið samdauna. Þannig að það er mjög hollt og gott fyrir okkur og það er rosalega mikill kraftur í þessum hópi. Ég er spennt að sjá hverju við getum áorkað saman,“ segir hún. Óhætt er að segja að breytingar hafi einkennt fyrstu vikur hennar í embætti. Fljótlega var ráðist í niðurskurð á skrifstofu borgar­stjóra og borgarritara auk þess sem mannréttindasvið var lagt niður. Ákveðnir aðilar gagnrýndu þær aðgerðir og tímasetningu þeirra. Hildur bendir aftur á móti á að flokkarnir sem eru í meirihlutanum hafi fengið skýrt umboð í kosningunum til að ráðast í breytingar. Verkefnalistinn sé langur og ekki eftir neinu að bíða. „Fjögur ár eru stuttur tími ef maður ætlar sér að ná miklum árangri og við lítum svo á að við megum engan tíma missa.“ Reksturinn eins og þungt olíuskip Nýr meirihluti hyggst setja öfluga þjónustu við íbúa í forgang en leggja á sama tíma áherslu á hagkvæman rekstur. Síðustu ár hefur rekstur borgar­innar verið undir væntingum, þar sem útgjöld hafa vaxið ­hraðar en tekjur, og hefur borgar­sjóður þurft að treyst á arðgreiðslur úr Orkuveitunni og eignasölur til að koma út réttum megin við núllið. „Raunverulega er staðan sú að við eigum ekki fyrir út­gjöldum, nema með því að selja eignir. Það er svolítið eins og heimili sem getur ekki borgað rafmagnsreikninginn nema selja sjónvarpið. Þannig á það auðvitað ekki að vera,“ segir Hildur. Þau muni gera allt sem í þeirra valdi standi til að koma rekstrinum í lag. „Það er ekki auðvelt og þetta er þungt olíuskip að snúa við. Við erum að setja mjög þungar og miklar kröfur á sviðsstjórana okkar um niðurskurð og erum þeim þakklát fyrir samstarfsviljann. Við ætlum okkur að ná sjálfbærni í rekstri borgar­innar en það er langur vegur.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu , sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article