Innlent | Kosningar | mbl | 27.5.2026 | 19:13 Hildur vill skynsemi og sátt í borginni Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri kynnti nýjan meirihluta í Viðey. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Gagnrýnir ný áform meirihlutans Silja Sóley: Klókt hjá Hildi að útiloka Miðflokkinn Miðflokksmenn óánægðir með ákvörðun Hildar Segir Björgu og Einar hafa lúffað fyrir Hildi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum » Fleiri tengdar fréttir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurborg, kynnti í gær meirihlutasamstarf með þeim Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, og Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknarflokksins. Verðandi borgarstjóri veitti mbl.is viðtal í Viðeyjarstofu að því loknu og segir að meirihlutaviðræður hafi gengið vel. Þær hófust á mánudag en samstarfssáttmálinn undirritaður í morgun. Eigum að vera breiðfylking „Ég ákvað strax að vanda vel til verka við myndun meirihluta. Kosningaúrslitin voru með þeim hætti að Sjálfstæðisflokknum tókst að verða aftur sú breiðfylking, sem við áður vorum, og við sóttum stuðning úr mjög breiðum hópi fólks. Mér fannst mikilvægt að stíga skref sem myndu leiða til þess að við gætum áfram verið þessi breiðfylking, að við gætum áfram sótt stuðning víða í borgina og að sjálfstæðisstefnan væri áfram stefna sem svo margir trúðu á. Ég freistaði þess auðvitað að ræða við þá flokka sem ég talaði um í aðdraganda kosninga, ég vildi mynda meirihluta með, sem voru bara Viðreisn, Framsókn og Miðflokkur. En á endanum var þetta niðurstaðan.“ Loforðalistinn skilyrði Voru engir hnökrar þar á? „Við hófum þarna viðræður á mánudagsmorgni og sátum bara við dagana langa á afviknum stað úti á Granda. Og það gekk bara ákaflega vel. Við þekkjumst öll vel og það var mikill samhljómur í málefnum. Ég lagði auðvitað ríka áherslu á það á grundvelli kosningaúrslita, að ég hefði lofað kjósendum mínum að ég myndi standa við þau verkefni sem að ég setti á blað og það mætti ekki fyrirstöðu hjá þessum samstarfsflokkum. Þannig að við auðvitað munum koma okkar málum öllum í framkvæmd. Það var raunar mikill samhljómur í málefnaskrám þessara flokka, margir sameiginlegir fletir.“ Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson voru kát í Viðey. mbl.is/Eggert Jóhannesson Við erum metnaðarfull Var það nokkuð erfitt, þú með langa og nákvæma málefnaskrá, en þau síður? „Við vorum með langa málefnaskrá og ég gengst alveg við því að við erum metnaðarfull. Við erum með mjög kraftmikinn hóp og sá hópur sem bætist nú við, borgarfulltrúar Viðreisnar og Framsóknar, munu smella vel þar inn. Við fórum inn í þessa kosningabaráttu með áherslu á að tala meira um okkur og minna um aðra, að það yrði bjart yfir okkur og jákvæðni og þannig viljum við fara inn í þetta kjörtímabil. Það er mjög mikið af nýju fólki, það er mjög kraftmikið og metnaðarfullt og með mikla ástríðu fyrir verkefnunum fram undan. Og ég held að þetta samstarf verði gott og farsælt.“ Allir jafnmikilvægir Meirihlutann skipar mestmegnis nýtt fólk, í hópnum er ekki mikil reynsla, svona fyrir utan þig og Einar. Verður þú ekki eins og drottning í ríki þínu? „Það verða allir jafnmikilvægir í þessum meirihluta og við munum öll standa saman að því að ná árangri. Þó að þarna séu ekki margir með reynslu innan borgarstjórnar þá sóttum við mjög reynslumikið fólk úr samfélaginu, sem hefur reynslu úr atvinnulífinu, úr íþróttalífinu, menningarlífinu og víðar. Og það getur nýtt þá krafta sína í þeim störfum sem nú bíða. Það skiptir auðvitað máli að þegar kemur að því að taka yfir málaflokka í Reykjavík, að fólkið sem tekur þá yfir hafi reynslu og innsýn og þekkingu á málaflokknum sem þau ætla að keyra áfram og ná árangri með.“ Lét fortíðina ekki ráða úrslitum um samstarf Þessir samstarfsflokkar hafa nú áður gengið til kosninga með breytingar á vörunum, en svp tók Viðreisn þátt í útilokun þinni fyrir fjórum árum og Framsókn guggnaði. Af hverju treystir þú þeim betur núna? „Ég ákvað láta ekki fortíðina eða einhver samskipti úr fortíðinni ráða úrslitum um þessa ákvörðun og það á við um alla þessa þrjá flokka. Ég tók hreinlega ákvörðun um það sem ég teldi Reykjavík fyrir bestu. Ég hef í gegnum árin – ég hef setið átta ár í borgarstjórn – talað um menningarstríðið í borginni og þær djúpstæðu deilur sem uppi hafa verið um framtíð borgarinnar. Það hefur ríkt hér mjög mikið stjórnlyndi, margir upplifa að hér hafi jafnvel verið rekin öfgastefna í skipulags- og samgöngumálum, en ég held að svarið við því sé ekki að fara alveg í hina áttina og hinn pólinn, heldur að hér sé hægt að reka þessa borg af skynsemi og festu með þeim hætti að stærstur hluti borgarbúa sé sáttur. Það er mitt markmið og ég held að við náum því best í þessu samstarfi.“ Borgarfulltrúar nýja meirihlutans í Viðey. mbl.is/Eggert Jóhannesson Mjög ánægð með skipan ráða og nefnda Þú þarft að vera með fleiri en borgarbúa sátta, þú þarft líka að vera með borgarfulltrúa meirihlutans sátta. Þið hafið skipt með ykkur verkum, þú verður borgarstjóri og Björg og Einar skipta með sér formennsku í borgarráði og forsæti í borgarstjórn. En hvað með önnur ráð og nefndir borgarinnar? „Við höfum skipt þeim verkum á milli okkar líka, en kynnum það ekki opinberlega fyrr en á næstu dögum. En við erum mjög ánægð með niðurstöðuna.“ Samstarfssáttmálinn er eilítið almennt orðaður, en hann virðist að miklu leyti byggður á kosningastefnu ykkar. Er eitthvað þar frá samstarfsflokkunum? „Eins og ég nefndi, þá var meiri samhljómur milli þessara flokka en kannski margir gerðu sér grein fyrir. Við settum það sem algjört skilyrði og algjörar forsendu fyrir meirihlutasamstarfi, að við gætum staðið við loforð okkar gagnvart borgarbúum um breytingar. Af kosningaúrslitunum er alveg ljóst að borgarbúar kalla eftir breytingum á áherslum í samgöngumálum og skipulagsmálum. Og þær rata hér inn í þennan sáttmála. Við ætlum okkur að blása til stórsóknar í skólamálum. Og leikskóla- og daggæslumálum. Við oddvitarnir þrír, erum auðvitað öll fjölskyldufólk, eigum börn í leikskólum og grunnskólum. Og við vitum í hvaða brasi fjölskyldur standa í borginni þegar að borgarkerfið er ekki með þeim í liði. Og við ætlum að breyta því.“ Verkefnalistinn og aðhald kjósenda Þið talið um mælanleg markmið í skólamálum en segið ekki hver þau eru og í samstarfssáttmálanum er ekki mikið nefnt sem hönd á festir. Þarftu ekki að vera skýrari um það? „Við erum með mjög mælanleg og handföst markmið og þau verða tímasett. Í kosningunum kynntum við okkar kosningaáherslur með þeim hætti að við flokkuðum þau í hundrað daga áætlun, tólf mánaða áætlun og fjögurra ára áætlun og þetta eru þau verkefni sem við viljum klára strax á kjörtímabilinu. Verkefnalistinn í meirihluta verður settur saman með þeim hætti. Hann mun birtast á vefsíðunni verkefnalisti. is þegar vaktaskiptin verða í ráðhúsinu 2. júní. Og þar verður fjöldinn allur af málum, sem við bjóðum borgarbúum að fylgjast með á þessari vefsíðu allt kjörtímabilið, veita okkur virkt aðhald og við munum leyfa fólki að fylgjast með þeim málum sem eru komin í ferli og hvenær þeim lýkur.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Gagnrýnir ný áform meirihlutans Silja Sóley: Klókt hjá Hildi að útiloka Miðflokkinn Miðflokksmenn óánægðir með ákvörðun Hildar Segir Björgu og Einar hafa lúffað fyrir Hildi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stytta af Messi veldur hættu Stöðvuðu slagsmál nágranna um bílastæði Hildur vill skynsemi og sátt í borginni Íslendingarnir fögnuðu sigri Hildur geislaði í 69 þúsund króna kjól í Viðey Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot á Múlaborg Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Stytta af Messi veldur hættu Stöðvuðu slagsmál nágranna um bílastæði Hildur vill skynsemi og sátt í borginni Íslendingarnir fögnuðu sigri Hildur geislaði í 69 þúsund króna kjól í Viðey Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp