Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Grænt ljós á kaup Nova á Ofar

Read Full Article →

Nova klúbbnum hf. hefur borist tilkynning frá Samkeppniseftirlitinu þar sem fram kemur að eftirlitið telji ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar vegna kaupa Nova á öllu hlutafé í Ofar hf. Gert ráð fyrir að lokauppgjör og frágangur viðskiptanna fari fram á næstu vikum, þegar öðrum skilyrðum kaupanna hefur verið fullnægt. Að kaupunum frágengnum mun Ofar hf. teljast hluti af samstæðu Nova klúbbsins hf. frá og með kaupsamningsdegi, 20. febrúar 2026. Undirritun samnings um kaup Nova á öllu hlutafé í Ofar fór fram 20. febrúar sl. Heildar virði kaupanna nemur 4,4 milljörðum króna. Kaupin eru fjármögnuð með nýju lánsfé að fjárhæð 2,8 milljarðar króna og handbæru fé að fjárhæð 1,6 milljarðar króna. Sjá einnig Nova kaupir Ofar í 4,4 milljarða viðskiptum Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar. Ofar þjónustar fyrirtæki og stofnanir með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Heildartekjur Ofar á árinu 2025 voru um 7,8 milljarðar króna, EBITDA félagins tæplega 620 milljónir króna og rekstrarhagnaður um 360 milljónir króna. Seamlegðaráhrif um 250 milljónir á ári Áætlaður vöxtur Ofar á núverandi ári sem og áætluð jákvæð samlegðaráhrif á EBITDA samstæðu Nova klúbbsins eru samtals um 250 milljónir króna á ársgrundvelli, þegar þau eru að fullu komin fram. Þannig verða áætluð heildaráhrif á EBITDA samstæðunnar um 870 milljónir króna en gert er ráð fyrir að árlegar fjárfestingar samstæðunnar aukist um 60 milljónir á ári. „Viðskiptin munu þannig styrkja sjóðstreymi samstæðunnar verulega,“ segir í tilkynningu Nova til Kauphallarinnar.

Share this article