Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tekjur Nova aukast um nærri 50% með kaupunum á Ofar

Read Full Article →

Nova Klúbburinn hefur uppfært afkomuspá sína fyrir árið 2026 í kjölfar þess að kaup félagsins á Ofar gengu í gegn. Félagið gerir nú ráð fyrir að tekjur samstæðunnar verði á bilinu 19,0-19,4 milljarðar króna, en til samanburðar gerði fyrri spá ráð fyrir 13,6-14,0 milljarða króna veltu í ár. Það myndi samsvara um 44-47% vöxt samkvæmt tilkynningu Nova til Kauphallarinnar. Þá gerir félagið ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 3,6-3,8 milljarðar króna í ár. Fyrri spá hljóðaði upp á 3,2-3,4 milljarða króna EBITDA-hagnað. Þá færist spá um heildarfjárfestingar á árinu upp um 100 milljónir króna, upp í 1,2 milljarða króna, sem Nova segir að skýrist að stærstum hluta af verkefnum tengdum samþættingu og innleiðingu. „Uppfærð afkomuspá gerir ráð fyrir að einskiptis kostnaður vegna innleiðingar og samþættingar verði að mestu kominn fram á þessu ári en að jákvæð samlegðaráhrif verði ekki komin fram nema að litlu leyti. Á komandi ári er áætlað að þau verkefni sem skila eiga jákvæðri samlegð verði komin í fulla virkni.“ Nova Klúbburinn gekk þann 19. júní frá kaupum á öllu hlutafé Ofar. Endanlegt heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna að teknu tilliti til nettó stöðu veltufjármuna og hreinna vaxtaberandi skulda á uppgjörsdegi nam 4.349 milljónum króna sem greiddist með nýju láni, að fjárhæð 2.700 milljónir króna, og handbæru fé. Sjá einnig Nova gengur frá kaupum á Ofar Með kaupunum varð Ofar hluti af samstæðureikningi félagsins frá og með 1. júní 2026. Nova Klúbburinn segir rekstur Ofar hafa þróast í takt við væntingar það sem af er ári. Bæði tekjur og EBITDA séu í góðum vexti frá fyrra ári. „Kaupin á Ofar eru fyrsta stóra skrefið í uppbyggingu Nova Klúbbsins sem fjölbreyttrar tækni- og innviðasamstæðu. Á næstu misserum verður lögð áhersla á að ná fram rekstrarlegri samlegð á milli félaganna um leið og bæði Nova og Ofar þróast áfram sem sjálfstæð og sterk vörumerki.“ Sjá einnig Nova hyggst sækja fram í nýjum geirum Meðal stærstu verkefna í kjölfar viðskiptanna er að flytja í sameiginlegar höfuðstöðvar í Álfabakka 8 á öðrum ársfjórðungi 2027, sameina vöruhúsarekstur, auka krosssölu milli félaganna og stuðla að áframhaldandi uppbygging nýrra lausna tengdum gagnaverum og stjórnkerfisvöktun þeirra. Nova segir að árið 2027 verði umbreytingaár þar sem félagið mun ráðstafa fjármagni með markvissum hætti í verkefni sem hafa skýra arðsemiskröfu og styðja við langtímaverðmætasköpun hluthafa. „Við erum ánægð með árangur Ofar á árinu og hlökkum til að byggja enn öflugri samstæðu með auknu samstarfi félaganna. Ofar býr yfir sterkum tengslum við íslenskt atvinnulíf og stór hluti tekna félagsins kemur frá traustum viðskiptasamböndum,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir , forstjóri Nova Klúbbsins. „Með öflugu baklandi Nova Klúbbsins skapast aukin tækifæri til fjárfestinga, uppbyggingar innviða og þróunar nýrra verkefna sem styðja við framtíðarsýn Ofar. Kaupin eru liður í stefnu Nova Klúbbsins um að byggja upp öfluga samstæðu sem skapar verðmæti með fjarskiptum, tæknilausnum og innviðum. Kaupin breikka tekjugrunn félagsins og styrkja sjóðstreymi samstæðunnar.“

Share this article