Nova Klúbburinn gekk í dag frá kaupum á öllu hlutafé Ofar. Endanlegt heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna að teknu tilliti til nettó stöðu veltufjármuna og hreinna vaxtaberandi skulda á uppgjörsdegi nemur 4.349 milljónum króna sem greiðist með nýju láni, að fjárhæð 2.700 milljónir króna, og handbæru fé. Með kaupunum verður Ofar hluti af samstæðu Nova Klúbbsins frá og með 1. júní síðastliðnum. „Í ljósi þess mun Nova Klúbburinn endurskoða útgefnar fjárhagslegar horfur fyrir árið í heild og birta á markaði svo fljótt sem unnt er,“ segir í tilkynningu Nova til Kauphallarinnar. Sjá einnig Nova kaupir Ofar í 4,4 milljarða viðskiptum Ofar sérhæfir sig á sviði tæknilausna fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir með þjónustu og samstarfi við alþjóðlega tæknirisa á borð við Lenovo, Canon, IBM, Bose og Sony. „Kaupin eru mikilvægt skref í að styrkja Nova Klúbbinn sem eignarhaldsfélag með aðgreindar tekjustoðir á sviði þjónustu, tækni og innviða.“ Jón Mikael Jónasson, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Ofar, var nýlega ráðinn forstjóri Nathan hf. Leit stendur nú yfir að nýjum framkvæmdastjóra Ofar. Stjórn Ofar munu skipa Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins, sem gegna mun stjórnarformennsku, Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, og Jón Björnsson, forstjóri Veritas, sem gegnt hefur stjórnarformennsku í Ofar. Ofar mun að öðru leyti starfa áfram undir eigin vörumerki og stjórnendum. Sjá einnig Nova hyggst sækja fram í nýjum geirum „Það er ánægjulegt hversu greiðlega kaupin hafa gengið fyrir sig. Þetta þýðir að hægt verður að vinna hratt úr þeim samlegðartækifærum sem felast m.a. í auknu vöruframboði, aukinni krosssölu milli ólíkra markhópa félaganna og hagræðingu í birgðahaldi. Hjá Ofar er öflugt teymi á mikilli siglingu, enda eykst eftirspurn eftir tæknibúnaði hratt á tímum gervigreindar og uppbyggingar í gagnversiðnaði á Íslandi,” segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir , forstjóri Nova Klúbbsins. „Við trúum því að tæknin eigi að einfalda lífið, gera það skemmtilegra og auðvelda fólki og fyrirtækjum að koma hlutunum í verk. Ofar er í tíðum samskiptum við fjölmörg íslensk fyrirtæki, veitir þeim framúrskarandi þjónustu og þekkir því þarfir þeirra vel.“