Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Ocu­lis rauk upp eftir nýtt verðmat

Read Full Article →

Hluta­bréf hækkuðu víða í Kaup­höllinni í dag og hækkaði úr­vals­vísi­talan um tæp­lega 2%. Mesta hækkun dagsins var á bréfum augn­lyfja­fyrir­tækisins Ocu­lis, sem hækkuðu um rúm­lega 9%. Dagsloka­gengi Ocu­lis var 3,750 krónur á hlut. Velta með bréf félagsins nam 260 milljónum króna. Eins og Við­skipta­blaðið greindi frá í morgun birti bandaríski fjár­festingar­bankinn Gug­gen­heim nýtt verðmat á Ocu­lis í gærkvöldi með kaupráðgjöf og bankinn metur bréf félagsins um 170% yfir markaðs­gengi. Markaðsvirði Ocu­lis er eftir hækkun dagsins rúm­lega 232 milljarðar króna en virði félagisns að mati Gug­gen­heim er í kringum 550 milljarðar króna. Sjá einnig Verð­meta Ocu­lis 170% yfir markaðs­gengi Gug­gen­heim telur að næstu vikur geti orðið af­gerandi fyrir fjár­festingar­söguna í Ocu­lis, en niður­stöður úr tveimur lykil­rannsóknum á augn­dropa­lyfi félagsins við sjón­himnu­bjúg af völdum sykursýki eru væntan­legar í júní. Síldar­vinnslan hækkaði fyrir upp­gjör Bréf Síldar­vinnslunnar hækkuðu einnig skarpt, eða um tæp­lega 4%, og enduðu í 113 krónum á hlut. Velta með bréf félagsins nam 168 milljónum króna. Hækkunin varð í að­draganda upp­gjörs félagsins, sem birt var eftir lokun markaða. Síldar­vinnslan hagnaðist um 35,1 milljón evra á fyrsta árs­fjórðungi, jafn­virði um 5,1 milljarðs króna miðað við meðal­gengi evru á tíma­bilinu. Hagnaðurinn fimm­faldaðist frá sama tíma í fyrra. Sjá einnig Hagnaðurinn fimm­faldaðist eftir góða loðnu­vertíð Rekstrar­tekjur námu 113,6 milljónum evra og EBITDA nam 46,1 milljón evra. Félagið segir af­komuna einkum litast af góðri loðnu­vertíð eftir tvö lé­leg ár, sterkum bol­fisk­mörkuðum og góðri veiði bol­fisk­skipa. Hækkanir vítt og breitt Festi hækkaði um tæp­lega 3% og Iceland Sea­food um tæp­lega 3%. Nova hækkaði um rúm­lega 2,5%, Brim um rúm­lega 2% og Al­vot­ech um rúm­lega 2%. Hagar hækkuðu einnig um rúm­lega 2% og bréf JBT Marel hækkuðu um tæp­lega 2%. Síminn hækkaði um tæp­lega 2%, Reitir um rúm­lega 1% og Sjóvá um tæp­lega 1%. Bankarnir hækkuðu einnig lítil­lega. Arion banki hækkaði um tæp­lega 1% og Ís­lands­banki um rúm­lega hálft pró­sent. Mest velta var með bréf Ís­lands­banka, eða 504 milljónir króna. Þar á eftir komu Arion banki með 289 milljónir og Ocu­lis með 260 milljónir. Heildar­velta dagsins nam um 2,2 milljörðum króna. Aðeins tvö félög lækkuðu sam­kvæmt yfir­liti markaðarins. Amaroq Minerals lækkaði um tæp­lega 2% og Icelandic Sea­food International um tæp­lega hálft pró­sent.

Share this article