Hlutabréf Oculis lækkuðu í Kauphöllinni í dag er gengi bréfanna féll um tæp 4% og endaði í 1.395 krónum. Hlutabréf Oculis hafa nú lækkað um rúm 6% á einum mánuði, tæp 46% frá áramótum og 36% á einu ári. Mikil lækkun varð á bréfum félagsins í byrjun júní eftir að tvær þriðja stigs rannsóknir á augndropunum OCS-01 náðu ekki aðalmarkmiði sínu við meðferð á sjónhimnubjúg af völdum sykursýki. Oculis ákvað í kjölfarið að sækja ekki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir lyfið við þeirri ábendingu. Velta með bréf Oculis var þó aðeins 13 milljónir króna í dag og fóru 15 viðskipti fram með bréfin. Eimskip lækkaði næstmest, eða um rúmlega 1,5%, og Iceland Seafood International lækkaði um tæplega 1,4%. Heimar Festi og Amaroq Minerals lækkuðu einnig í viðskiptum dagsins um tæpt eða rúmt 1%. Úrvalsvísitalan OMXI15 stóð nánast í stað. Icelandair hækkaði mest Icelandair hækkaði mest allra félaga á aðalmarkaði, eða um tæp 2%, og endaði gengið í 0,72 krónum. Bréf JBTM hækkuðu um tæplega 1,2% og Sýn um tæpt 1%. Icelandair birti uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung fyrr í vikunni. Tekjur félagsins voru þær mestu sem það hefur skilað á öðrum ársfjórðungi, 496 milljónir dala, en rekstrartap nam tæpum 30 milljónum dala. Hækkun eldsneytiskostnaðar vó þungt í uppgjörinu og jókst eldsneytiskostnaður að frádregnum vörnum um 41 milljón dala milli ára. Hækkun bréfanna í dag kom samhliða nokkurri lækkun á hráolíumarkaði. Framvirkt verð á Brent-olíu féll aftur undir 100 dali á tunnu eftir að hafa farið yfir þau mörk í gær. Verðið stóð í kringum 96 dali þegar leið á daginn. Lægra olíuverð er almennt jákvætt fyrir flugfélög, enda er eldsneyti einn stærsti kostnaðarliður þeirra. Mest velta var með bréf Íslandsbanka, eða 457 milljónir króna. Velta með bréf Arion banka nam 264 milljónum og 167 milljónum með bréf Haga. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 1,2 milljörðum króna í 207 viðskiptum.