Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Í góðri stöðu á sterkum markaði

Read Full Article →

Rio Tinto er eitt stærsta námu- og málmfyrirtæki heims og hefur verið starfandi frá árinu 1873. Í dag starfar Rio Tinto í 34 löndum og eru starfsmenn fleiri en 61 þúsund talsins. Helstu vörur fyrirtækisins eru járngrýti, ál, kopar og litíum. Rio Tinto rekur þrettán álver víða um heim, meðal annars í Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Álverið í Straumsvík, eða ISAL, er hluti af Rio Tinto. Álverið var tekið í notkun fyrir nærri sex áratugum og er elsta álver landsins. Jérôme Pécresse, forstjóri ál- og litíumstarfsemi Rio Tinto, segir ISAL gegna mikilvægu hlutverki innan samstæðu Rio Tinto. Álverinu sé vel stýrt og einn helsti styrkleiki þess öflugt teymi sem þar starfar. Rannveig Rist hefur látið af störfum sem forstjóri Rio Tinto á Íslandi og er Sunna Björg Helgadóttir tekin við. Jérôme segir að um tímamót sé að ræða hjá fyrirtækinu en Rannveig stýrði álverinu í Straumsvík í tæpa þrjá áratugi. Sunna Björg kemur til fyrirtækisins úr orkugeiranum en áður starfaði hún um árabil hjá Rio Tinto á Íslandi, meðal annars sem framkvæmdastjóri kerskála. Jérôme telur að reynsla Sunnu Bjargar úr orkugeiranum muni koma sér vel að notum, enda sé orka lykilþáttur fyrir álframleiðslu. „Við erum líka ánægð með að sjá eina konu afhenda annarri konu keflið. Við erum stolt af fjölbreytileika innan okkar raða á heimsvísu hjá Rio Tinto Aluminium og hér á Íslandi. Ég hef mikla trú á Sunnu og að hún muni leiða okkur inn í næsta áratug, með mjög sterkt teymi sér við hlið,“ segir Jérôme. Í dag sé álverið í sterkri stöðu. „Ég myndi segja að það njóti góðs af álmarkaði sem er nokkuð heilbrigður. Álverið er vel rekið en það er eldra og minna en önnur álver sem við rekum víða um heim,“ segir Jérôme, en þörf sé á áframhaldandi fjárfestingum til að viðhalda því. Með lokun Arvida, elsta álvers Rio Tinto í Kanada, verður álverið í Straumsvík elsta álverið innan samstæðunnar. Jérôme segir markaðsaðstæður hafa verið góðar að undanförnu. Jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar hafi verið að batna áður en átök brutust út í Mið-Austurlöndum, en aukin eftirspurn á sama tíma og framboð er takmarkað leiðir til hækkandi álverðs. Evrópa hafi þá verið háð áli frá Mið-Austurlöndum en nú sé aukin eftirspurn eftir áli sem framleitt innan Evrópu, sem sé góðs viti fyrir ISAL sem er vel staðsett til að þjónusta markaðinn. Auk þess er á Íslandi framleitt ál með mjög lágu kolefnisspori, sem sífellt fleiri viðskiptavinir kalla eftir. „Allir þessir ytri þættir í starfsumhverfinu eru jákvæðir, þótt stríðsátök víða um heim séu mikið áhyggjuefni. Ég myndi þó segja að framtíð ISAL sé ekki mjög frábrugðin framtíð annarra álvera okkar, hvar sem er í heiminum. Hún byggir að miklu leyti á getu álversins til að tryggja sér raforku á samkeppnishæfu verði og að eiga heilbrigt samband við orkufyrirtækin,“ segir Jérôme. Þar sé mikil óvissa til staðar. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article