Álverið í Straumsvík gegnir mikilvægu hlutverki innan samstæðu Rio Tinto og er í sterkri stöðu, að sögn Jérôme Pécresse, forstjóri áls- og lithíumstarfsemi Rio Tinto. Þrátt fyrir góða stöðu álmarkaðarins og aukna eftirspurn geti hátt raforkuverð og erfitt samband við orkufyrirtæki þó haft verulega neikvæð áhrif. Þörf sé á ákveðinni vakningu á Íslandi til að tryggja áframhaldandi uppbyggingu og samkeppnishæfni. Spurður út í umræðu sem hefur í gegnum tíðina átt sér stað um í hvað raforkan eigi að fara segir Jérôme að sú umræða eigi sér stað alls staðar. Hún snúist um hvernig stjórnvöld eigi að vega og meta raforkukostnað fyrir álframleiðslu, fyrir annan iðnað og fyrir almenning. „Áliðnaðurinn hefur hins vegar alltaf skapað mikinn ávinning þar sem hann starfar. Hann skapar umtalsverðan fjölda verðmætra starfa og tengdra verkefna fyrir verktaka og þjónustufyrirtæki. Þess vegna velja stjórnvöld í mörgum löndum að styðja áfram við áliðnaðinn með einum eða öðrum hætti,“ segir hann. Álverið í Straumsvík sé mikilvægt fyrir atvinnustarfsemi hér á landi. Um 400 manns starfi þar, afleidd störf enn fleiri og efnahagsleg áhrif mikil í heild sinni. Fyrirséð sé að eftirspurn eftir áli verði áfram mikil, meðal annars vegna orkuskiptanna. „Ég tel að orkuskiptin skapi heilbrigða eftirspurn. Við sjáum líka möguleika á því að ál komi í stað annarra málma, til dæmis kopars í köplum og stáls í bílum. Við höfum því mikla trú á framtíð áls,“ segir Jérôme. Ef rétt sé staðið að í samstarfi við orkufyrirtæki geti álver jafnvel skapað verðmæti fyrir raforkukerfið og skapað sveigjanleika. „Eftir því sem við verðum betri í að reka álverin okkar, sjáum við betur hvaða verðmæti þau geta skapað fyrir raforkukerfið. Ef við vinnum í samstarfi við orkufyrirtæki, eins og við gerum til dæmis í Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Kanada, verður til gagnkvæmur ávinningur fyrir alla aðila á endanum. En það krefst samstarfsvilja,“ segir hann. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .