„Það er allt gott að frétta! Ég er bara alltaf að syngja og í crossfit,“ sagði Diljá þegar hún var spurð um hvað væri að frétta. Nýja lagið er upphafið af nýju tímabili hjá Diljá, lagið heitir Ó, Rómeó, og er fyrsta lagið af nokkrum sem munu koma út á næstunni. „Þetta er bara um það að týna sjálfum sér þegar maður er að reyna að halda í einhvern Rómeó,“ segir hún um umfjöllunarefni lagsins. Það verður því spennandi að heyra meira frá Diljá á næstu vikum og mánuðum. Sjáðu Diljá frumflytja nýja lagið sitt í spilaranum hér að ofan. Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu á RÚV, öll fimmtudagskvöld og í spilaranum þegar þér hentar.