Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brynja Rún í eig­enda­hóp Árna­son Faktor

Read Full Article →

Brynja Rún Brynjólfsdóttir hefur bæst við eigendahóp ráðgjafafyrirtækisins Árnason Faktor, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Eigendur félagsins eru nú fimm talsins en auk Brynju Rúnar eru í hópnum þau Ásdís Magnúsdóttir, Einar Karl Friðriksson, Gunnar Örn Harðarson og Sigurður Ingvarsson. Brynja Rún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur aflað réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómstólum. Hún hefur starfað hjá Árnason Faktor um árabil sem lögfræðingur og ráðgjafi á sviði vörumerkjamála og tók árið 2024 við sem framkvæmdastjóri félagsins. Árnason Faktor er ráðgjafafyrirtæki á sviði hugverkaréttar. Félagið leggur áherslu á þjónustu við íslenskt atvinnulíf en þjónustar jafnframt erlenda aðila við verndun einkaleyfa, vörumerkja, hönnunar og annarra hugverkaréttinda. Hjá Árnason Faktor starfar teymi 17 starfsmanna með menntun á sviði laga, tækni, raun- og hugvísinda.

Share this article