Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bjarni Bjarnason tekjuhæstur aðgerðasinna

Read Full Article →

Bjarni Bjarnason, stjórnarmaður í fagráði Landverndar og fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er tekjuhæstur samfélagsáhrifavalda og aðgerðarsinna samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Útsvarsskyldar tekjur hans námu rúmlega 1,7 milljónum króna á mánuði á síðasta ári, miðað við greitt útsvar. Falasteen Abu Libdeh, gjaldkeri Ísland-Palestínu og eigandi Ráðar, kemur næst á listanum með rúmlega 1,6 milljónir króna á mánuði miðað við útsvarsskyldar tekjur. Indriði Haukur Þorláksson, hagfræðingur og fyrrverandi stjórnarmaður Íslandsdeildar Transparency International, er þriðji með rúmlega 1,5 milljón króna á mánuði. Tekjur Falasteen lækkuðu milli ára, úr 1,812 milljónum króna á mánuði í 1,606 milljónir. Tekjur Indriða Hauks jukust hins vegar úr 1,460 milljónum í 1,538 milljónir króna á mánuði. Ekki liggja fyrir samanburðartölur fyrir Bjarna frá fyrra ári. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, framkvæmdastjóri Courage International og fyrrum þingkona, situr í fjórða sæti listans með rúmlega 1,4 milljónir króna á mánuði. Árni Múli Jónasson, fyrrverandi formaður Íslandsdeildar Transparency International og fyrrverandi framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, er í fimmta sæti með rúmlega 1,4 milljónir króna á mánuði. Meðal annarra þekktra nafna á listanum má nefna Semu Erlu Serdaroglu, formann Solaris, sem var með rúmlega 1,1 milljón króna á mánuði miðað við greitt útsvar. Sveinn Rúnar Hauksson, fyrrverandi heimilislæknir og fyrrverandi formaður Ísland-Palestínu, var með rúmlega 1 milljón króna á mánuði, samanborið við tæpar 2 milljónir árið áður. Katrín Oddsdóttir, lögmaður og aðgerðasinni, var með rúmlega 1 milljón króna á mánuði miðað við greitt útsvar. Þá var Auður Anna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands, með rúmlega 800 þúsund krónur á mánuði. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article