Innlent | mbl | 22.5.2026 | 19:00 176 milljarða kostnaður á 8 árum Kostnaður hefur aukist verulega á síðastliðnum árum. Ljósmynd/Thinkstock Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Nýtt greiðsluþátttökukerfi Ábendingar varðandi nýtt greiðsluþátttökukerfi Konan á kassa í Bónus hefur ekki val Ekki til nógu margir heilsugæslulæknar Margar milljónir fyrir mjaðmarliði Hægt að fara út í aðgerð » Fleiri tengdar fréttir Greiðsluhlutur Sjúkratrygginga Íslands á síðastliðnum átta árum í lyfseðilsskyldum lyfjum nemur hið minnsta rúmum 176 milljörðum. Þetta kemur fram í svari Ölmu Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ólafs Adolfssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. Tekur þessi upphæð til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga í almennum og leyfisskyldum lyfjum. Yfirlitið nær þó aðeins til hluta leyfisskyldra lyfja, en Sjúkratryggingar eru ekki með upplýsingar um þau lyf sem afgreidd eru í apóteki Landspítalans. Frétt af mbl.is Upphafið af því að lækka enn frekar 20 milljarðar árið 2025 Kemur fram í svarinu að hlutdeild Sjúkratrygginga hafi farið hækkandi á undanförnum árum, og hefur hlutdeild einstaklinga þar af leiðandi farið lækkandi fyrir vikið. Hlutdeild Sjúkratrygginga í leyfisskyldum lyfjum er 100% og greiða sjúklingar því ekki fyrir þau. Var greiðsluhlutdeild Sjúkratrygginga í almennum lyfjum 70,2% árið 2018 en árið 2025 var hlutdeild stofnunarinnar komin upp í 77%. Hefur greiðsluhlutdeild sjúklinga því farið úr 29,8% niður í 23% á undanförnum árum. Hefur þessi aukna greiðsluhlutdeild Sjúkratrygginga eðli máls samkvæmt valdið auknum kostnaði fyrir stofnunina. Var hlutur Sjúkratrygginga þannig rúmir 9 milljarðar árið 2018 en var árið 2025 tæpir 20 milljarðar. Hefur greiðsluhlutur sjúklinga reyndar einnig farið hækkandi þrátt fyrir minnkandi hlutdeild en kostnaður þeirra var árið 2018 3,8 milljarðar en var kominn upp í 5,9 milljarðar árið 2025. Sjúkratryggingar Íslands. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjúklingar munu nú greiða meira en áður Kemur fram í svarinu að þrátt fyrir að greiðluhlutdeild Sjúkratrygginga hafi farið hækkandi að undanförnu sé mælt fyrir um það í lögum um sjúkratryggingar að fjárhæðir þrepa í lyfjagreiðslukerfi skuli endurskoðaðar árlega til þess að heildarhlutfall þess kostnaðar sem sjúkratryggðir þurfi að greiða sjálfir af lyfjakostnaði haldist að mestu óbreytt milli ára. Nýtt greiðsluþrep var innleitt um síðustu áramót og telur heilbrigðisráðherra að það muni gera það að verkum að 400-450 milljónir króna muni sparast árlega af þeim sökum fyrir Sjúkratryggingar. Er gert ráð fyrir að sjúklingar muni í mesta lagi borga 2.000-3.000 krónum meira á ári en áð fyrir lyf sem falla undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga. „Markmið breytinganna er að bregðast við vaxandi útgjöldum hins opinbera vegna lyfjakaupa en standa jafnframt vörð um grundvallarmarkmið greiðsluþátttökukerfisins sem er að verja einstaklinga fyrir háum útgjöldum sem og einstaka hópa, þ.e. öryrkja, aldraða og börn,“ segir í svarinu. Tengdar fréttir Nýtt greiðsluþátttökukerfi Ábendingar varðandi nýtt greiðsluþátttökukerfi Konan á kassa í Bónus hefur ekki val Ekki til nógu margir heilsugæslulæknar Margar milljónir fyrir mjaðmarliði Hægt að fara út í aðgerð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Besta deild karla, bein lýsing Breiðablik - KR, staðan er 1:0 Umfangsmikil brot gegn viðskiptabanninu Hrúðurkarlar í Hormússundi Mark Mikaels dugði ekki til Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hernaðardróni brotlenti rétt hjá Íslendingi í hjólaferð Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Skýrslan afhjúpar stöðuna: „Ekkert jafnræði“ Mestu sérhagsmunir í sögunni Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Besta deild karla, bein lýsing Breiðablik - KR, staðan er 1:0 Umfangsmikil brot gegn viðskiptabanninu Hrúðurkarlar í Hormússundi Mark Mikaels dugði ekki til Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markleysið enn einn áfellisdómur Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum Áhersla á húsnæðismál, skipulag og samgöngur Hernaðardróni brotlenti rétt hjá Íslendingi í hjólaferð Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?