Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fagnar öllum með bros á vör

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 23.5.2026 | 15:00 Fagnar öllum með bros á vör Feðgarnir Ómar Halldórsson og Hilmir Fannar Ómarsson kunna vel við sig á golfvellinum. Orri Páll Ormarsson [email protected] Setja bókamerki „Ég hlakka mest til að spila golf og hitta allt fólkið,“ segir hinn 16 ára gamli Hilmir Fannar Ómarsson brosandi gegnum Zoom frá heimili sínu í Zug í Sviss en um næstu helgi verður hann meðal keppenda á „ Special Olympics Summer Games“ sem eru svissnesku Sumarólympíuleikarnir fyrir einstaklinga með þroskahömlun. Móðir hans, Guðrún Lind Halldórsdóttir, tekur heilshugar undir orð sonar síns. „Fyrir Hilmi snúast þ essir leikar um að hafa gaman og ekkert annað. Hann er auðvitað spenntur en það snýst meira um að fara út á völl og slá bolta en að taka þátt í keppni. “ Það var Eunice Kennedy Shriver, systir Johns F. Kennedys Bandaríkjaforseta, sem setti leikana á laggirnar árið 1968 og teygja þeir anga sína víða. Að sögn Ómars Halldórssonar, föður Hilmis, sem sjálfur er menntaður í þjálfun iþróttamanna með þroskahömlun, leggur Sviss mikið upp úr viðburðinum en 1.600 keppendur munu reyna með sér í 16 greinum. Mótið er haldið á fjögurra ára fresti. 52 þátttakendur eru í golfinu í þremur mismunandi flokkum og fylgja þeim 800 þjálfarar og aðstoðarmenn. Fjölskyldan á góðri stund: Ómar, Hilmir Fannar, Guðrún Lind og Halldór Andri. Sjálfur heldur Ómar utan um þá keppni en hann var nýlega ráðinn landsliðsþjálfari fatlaðra kylfinga í Sviss en það á bæði við um líkamlega fatlaða og fólk með þroskahömlun. Um er að ræða glænýja stöðu. „Það má eiginlega segja að Hilmir hafi dregið mig af stað í þessa vegferð,“ segir Ómar. Alltaf tilbúinn að fara á æfingu Golfmótið stendur í fjóra daga og verður leikinn fjórmenningur, þar sem fatlaður og ófatlaður kyllfingur skiptast á að slá. Með Hilmi verður bróðir hans, Halldór Andri, sem er 18 ára. „Halldór er prýðilegur kylfingur með 16 í forgjöf en hefur samt ekki eins mikinn áhuga á sportinu og við Hilmir enda orðinn 18 ára og kominn með önnur áhugamál,“ segir Ómar. „Hilmir er alltaf tilbúinn að fara á æfingu og dregur mig með sér, frekar en hitt.“ Ómar segir son sinn alls ekki upptekinn af tæknihlið íþróttarinnar. Hann gangi einfaldlega að boltanum, án þess að stilla sér upp eða nema staðar til að hugsa. Hann bara slær. Gripið myndi enginn þjálfari kenna og líkamsstaðan brýtur allar reglur í bókinni. En samt geigar sveiflan aldrei. Og þegar boltinn þýtur út í loftið hrópar hann „haha“ og gætir þess að allir í grenndinni séu með á nótunum. „Flestir kylfingar eiga í baráttu við eigin huga. En aldrei Hilmir. Hann bara slær og heldur áfram,“ segir Ómar sem kveðst árum saman hafa reynt að leiðrétta sveiflu sonar síns. En hann lét ekki segjast. „Dag einn steinhætti ég þessu og spurði sjálfan mig: Hvers vegna ekki?“ Hilmir hefur þróað sína eigin sveiflu. Já, faðirinn leyfði syninum að fara sínar leiðir enda snýst golf ekki um afrek eða árangur í huga Hilmis, heldur að vera með. „Hilmir hefur ekkert keppnisskap. Honum er slétt sama um það að vinna. Hann vill bara taka þátt. Með bros á vör.“ Þannig er honum best lýst, að sögn foreldranna. Hvort sem það er á golfvellinum eða annars staðar. „Honum er sama um starfstitla, bakgrunn, fötlun. Hann heilsar öllum af einlægni og gleði. Jafnvel þó undirtektir séu engar. Hann fagnar öllum. Þannig er Hilmir,“ segir Ómar. Nánar er rætt við fjölskylduna í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gamli Liverpool-maðurinn rekinn Fagnar öllum með bros á vör United nálægt því að ganga frá kaupum Ljúffeng tómatsúpa með kotasælubollum „Þá ferðu frekar í símann og að skrolla á TikTok“ Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Taka ekki tillit til ósamræmisins Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Fagnar öllum með bros á vör Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Afleit reynsla af Skattinum Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Fimm flugum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Meirihlutasamstarf D og A handsalað Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Gamli Liverpool-maðurinn rekinn Fagnar öllum með bros á vör United nálægt því að ganga frá kaupum Ljúffeng tómatsúpa með kotasælubollum „Þá ferðu frekar í símann og að skrolla á TikTok“ Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verða með stíft eftirlit alla helgina Óku á gangandi vegfaranda og vistaðir í fangageymslu Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Afleit reynsla af Skattinum Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Fimm flugum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Meirihlutasamstarf D og A handsalað Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article