Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Úr skíðum í golf: „Ég sé mig ekkert sem fatlaðan“

Read Full Article →

Íþróttakappinn Hilmar Snær Örvarsson hefur síðustu ár stundað golf af kappi. Hann missti annan fótinn þegar hann var átta ára og segist ekki sjá sjálfan sig sem fatlaðan. Áður stundaði hann skíði og fór tvisvar á Vetrarólympíumót fatlaðra. „Ég hætti á skíðunum 2022 eftir ÓL í Kína. Í kjölfarið eignaðist ég barn, flutti til Danmerkur og fór í framhaldsnám,“ sagði Hilmar sem er kominn alfarið yfir í golfið. Innslag og viðtal við Hilmar má sjá hér að neðan. Hilmar Snær Örvarsson lætur fátt stöðva sig. Eftir að hafa farið tvisvar á Vetrarólympíumót fatlaðra hefur hann snúið sér alfarið að golfi síðustu ár. Hilmar keppti nýverið á sterku móti í Wales. Sér sig ekki sem fatlaðan Þrátt fyrir að vera með eina löpp og keppa formlega séð í fatlaðraflokki lítur Hilmar ekki þannig á sig. Þetta háir honum ekkert í daglegu lífi, né í keppni. „Ég lifi mínu lífi eins og allir aðrir myndi ég segja. Ég sé mig ekkert sem fatlaðan, hvað sem það þýðir“ „Ég hefði ekkert farið á tvenna Ólympíuleika nema út af því að ég væri með gervifót. Þannig að vissu leyti myndi ég segja að þetta hafi gefið mér tækifæri.“ Ætti hann að geta keppt um efstu sætin á Íslandsmótinu í golfi? Á síðasta ári var hann einu höggi frá niðurskurði. „Ég myndi nú ekki segja það,“ en hann datt út eftir tvo daga á mótinu fyrir ári. „En kannski eftir nokkur ár get ég gert það.“ Sterkt mót í Wales Hilmar keppti nýverið á Celtic Manor-vellinum í Wales, þar sem Ryder-bikarinn fór fram 2010. „Það gekk ágætlega seinni tvo dagana. Ég lenti í 17. sæti yfir allt og var í 4. sæti í mínum flokki. Ég spilaði á 79, 76 og 74 höggum. Það er mikið svigrúm til að bæta sig og ég þarf að gera það núna. Þetta gerir mér kleift að spila á sterkum mótum og keppa við kylfinga sem eru að glíma við svipuð vandamál og ég.“ Umgjörðin í kringum slíkt mót er mikil. „Þau bjuggu til rampa niður glompurnar þar sem fólk á hjólastól gat farið niður. Þau eru á vélknúnum þríhjólum og standa upp í þeim. Það var mjög gaman að sjá“ Forgjöfin í 0,5 Þrátt fyrir að forgjöfin sé afar lág ætlar hann að ná henni enn frekar niður. „Forgjöfin er í 0,5 eins og er. Stefnan er að lækka svolítið í sumar. En markmiðin eru ekkert endilega forgjöfin. Það er bara að standa sig vel á mótum og spila gott golf.“

Share this article