Viðskiptablaðið fékk tækifæri að fylgjast með því þegar fyrsti EX60-rafbíllinn rann af færibandinu í Torslanda-verksmiðju Volvo í Gautaborg í síðustu viku. Þetta er fyrsti rafbíll Volvo sem framleiddur er í Svíþjóð en fram til þessa hafa bæði rafbílar og tvinnbílar Volvo verið framleiddir í Kína. Er þetta því algjör stefnubreyting hjá Volvo, en félagið er að stærstum hluta í eigu kínverska bílaframleiðandans Geely. Það sýndi mikilvægi viðburðarins að bæði Ebba Busch, varaforsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi Kristilegra demókrata, og Magdalena Andersson, leiðtogi Verkamannaflokksins og fyrrum forsætisráðherra, mættu og héldu alveg hreint ágætar ræður. Volvo færir ekki aðeins framleiðsluna frá Kína heldur sækir tækni þaðan, svokallað risasteypu (e. mega casting). Í stað þess að setja saman 100 hluta í aftari hluta undirvagnsins með skrúfum og suðu er hann steyptur í einu lagi úr áli. Enginn annar bílaframleiðandi í Evrópu hefur enn innleitt þessa tækni en Tesla byrjaði fyrstu bílaframleiðenda við smíði Model Y. Fyrsti EX60 kemur af færibandinu í Torslanda í Gautaborg. Ökumaðurinn er forstjórinn og farþeginn er varaforsætisráðherrann. Við ræddum við Håkon Samuelsson, hinn aldna en síunga forstjóra Volvo, um nýja bílinn, stöðu Volvo og ekki síst hvað honum finnst um rafbíla en ítarleg umfjöllun er um breytingarnar hjá Volvo í blaði vikunnar, sem kom út í morgun. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .