Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skjálfti að stærð 4,8 í Bárðarbungu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruhamfarir Skjálfti að stærð 4,8 í Bárð­ar­bungu Elín Hrönn Jónsdóttir Jarðskjálfti að stærðinni 4,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 20:14 í kvöld. Annar skjálfti að stærðinni 2,6 var skömmu áður, eða klukkan 20:10. Báðir skjálftarnir eru staðsettir í norðanverðri öskju Bárðarbungu á um 2-4 km dýpi. Um 20 eftirskjálftar hafa mælst. Skjálftar af þessari stærð mælast nokkuð reglulega í Bárðarbungu og var síðasti skjálfti um og yfir 5 að stærð 31. janúar síðastliðinn og mældist 5,4 að stærð. Myndin sýnir hvar upptök skjálftans átti sér stað. Veðurstofa Íslands Fyrir 3 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Sviss - Katar Katar og Sviss gerðu 1-1 jafntefli í riðlakeppni HM karla í fótbolta 2026. Sviss sótti án afláts en náði ekki að skapa sér nægilega góð færi. Katar jafnaði metin í uppbótartíma. Þetta er þeirra fyrsta stig á HM. Fyrir 51 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Hrunamannahreppur 1150 ára afmæli Hruna­manna­hrepps fagnað Forseti Íslands sótti Hrunamannahrepp heim á afmæli sveitarfélagsins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Um­ræð­an um lagar­eldi mjög þung Samkomulag um þinglok virðist vera á lokametrunum, en eins og oft áður eru mál sem hafa þvælst þar fyrir – meðal annars frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi. Þingflokksformaður Viðreisnar segir að umræðam um málið hafi verið mjög þung. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína „Ég á börn sem lærðu orðið þjóð­ar­morð í æsku“ Það er stöðugt verið að reyna að fá okkur til að gleyma hryllingnum sem við sjáum og láta eins og hann sé ekki að gerast. Þetta segir bresk-egypskur leikari og höfundur sem er með sýningu á Listahátíð Reykjavíkur í kvöld. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Fyrir hverja starfa stjórn­völd?“ Samtök áhugafólks um spilafíkn hafa sent dómsmálaráðherra opið bréf þar sem þau mótmæla svokallaðri „blandaðri leið“ hvað varðar fjárhættuspil hér á landi. Formaður samtakanna spyr fyrir hvern blandaða leiðin sé og fyrir hvern stjórnvöld starfi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segist munu skrifa undir frið­ar­sátt­mála á morgun Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í dag að hann stefndi að því að undirrita friðarsamning við Íran á morgun. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Orban end­ur­kjör­inn for­mað­ur Fidesz Viktor Orban lætur ekki hugfallast þó hann hafi hrakist frá völdum í Ungverjalandi á dögunum. Hann var endurkjörinn formaður flokks síns í dag. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Stjörnu­stríð sekkur dýpra og dýpra Miðasala á nýjustu Stjörnustríðsmyndina hefur verið afspyrnuléleg. Ólíklegt þykir að sýningar í kvikmyndahúsum skili hagnaði. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Mjög mikill eldur en allir heilir eftir elds­voða á hafi Skipstjóri Barða segir mikinn reyk hafa borist um skipið eftir að eldur kviknaði í vélarrúmi þess nálægt Færeyjum í gær. Vel gekk að ráða niðurlögum hans en mikil hætta var á ferðum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ný könnun: Fleiri ætla að velja já í ágúst Meirihluti ætlar að velja já í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir DV. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Katar náði í sögu­legt stig, öllum að óvörum Katar náði jafntefli gegn Sviss, 1-1, en þeir jöfnuðu metin í uppbótartíma eftir að Sviss hafði legið í sókn allan leikinn. Þetta er fyrsta stig Katar í fjórðu tilraun. Fyrsti alvöru stórleikur mótsins verður svo leikur Brasilíu og Marokkó verður svo klukkan 22:00. Bæði lið eru á topp tíu lista FIFA yfir sterkustu lið í heimi. Hér fylgjumst við með öllu því helsta í fyrstu tveimur leikjum dagsins í lifandi fréttavakt. Við birtum helstu atvik strax og þau gerast. FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti FH náði topp­sæt­inu í Bestu deild Jóhann Páll Ástvaldsson FH-ingar eru á miklu skriði. Mummi Lú FH skaust upp fyrir Breiðablik í Bestu deild kvenna og er með eins stigs forskot á þær grænklæddu eftir úrslit dagsins. FH konur unnu öruggan 5-2 sigur á Víkingum en Breiðablik tapaði á sama tíma gegn Stjörnunni, 1-3. FH hefur unnið fimm leiki í röð og er með 19 stig gegn 18 stigum Breiðabliks. Stjarnan er nú í þriðja sæti með 14 stig. Grindavík/Njarðvík vann Fram 2-0 og eru nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur nú í 6. sæti með 11 stig en Fram er í því níunda með fjögur stig. Þróttur og ÍBV gerðu svo markalaust jafntefli. ÍBV er í 4. sæti með fimmtán stig og Þróttur í því fimmta með þrettán stig. Valur og Þór/KA gerðu einnig markalaust jafntefli. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Jarð­böð­in taka miklum breyt­ing­um Stefnt er að því að opna jarðböðin við Mývatn í lok mánaðarins eftir miklar framkvæmdir og breytingar. Böðin eru mikið aðdráttarafl í Mývatnssveit en hafa verið lokuð síðan um áramót. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Raf­magni komið aftur á kjarn­orku­ver­ið í Za­por­izhzh­ia Þorgils Jónsson Kjarnorkuverið í Zaporizhzhia, sem Rússar lögðu undir sig í innrásinni í Úkraínu 2022, er komið aftur inn á raforkunet Úkraínu, þremur dögum eftir að það datt út eftir árás Rússa. Viðgerðarmenn komust að verinu eftir að tímabundnu vopnahléi var komið á á svæðinu, að því er Alþjóða kjarnorkumálastofnunin segir í tilkynningu. Verið gekk á meðan á dísilknúnum rafstöðvum til að kæla kjarnakljúfana. Engrar aukinnar geislunar hefur orðið vart í nágrenni versins. Zaporizhzhia liggur á víglínunni milli Úkraínuhers og innrásarliðs Rússa og hafa stjórnvöld beggja vegna sakað hvort annað um að hætta á kjarnorkuslys með árásum í kringum verið. Hér sést kjarnorkuverið í Zaporizhzhia. EPA / SERGEI ILNITSKY Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Tán­ing­ar grun­að­ir um morð á Jót­landi Þorgils Jónsson Tveir ungir menn, 16 og 18 ára, eru í haldi lögreglu eftir að tvítugur maður fannst látinn í fljótinu Goðn, eða Gudenå, á Jótlandi í gær. Þeir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag, grunaðir um að hafa slegið tvítuga manninn, kyrkt hann og drekkt. Þeir neituðu að hafa drepið manninn en játuðu á sig grófa líkamsárás. Samkvæmt frétt DR þekktust mennirnir fyrir atvikið og hafði orðið sundurorða með ofangreindum afleiðingum. politiet.dk Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Gan­versk stjórn­völd leita lausna fyrir Partey Ganverska utanríkisráðuneytið hefur kallað eftir því að Kanada endurskoði ákvörðun sína að hleypa Thomas Partey ekki inn í landið. Partey mun missa af leik Gana þar í landi þar sem hann hefur verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Beck­ham kominn með Holly­wood-stjörnu David Beckham er kominn með sína eigin stjörnu í frægðargötunni í Hollywood. Stjörnuna fékk hann fyrir að eiga þátt í að auka veg og virðingu fótbolta í Bandaríkjunum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Lif­andi fjöru­doppa fannst í fyrsta sinn á Ís­landi Fyrsti fundur lifandi fjörudoppu var nýlega staðfestur hér á landi. Áður hafði einungis ein fjörudoppa fundist á Íslandi og er hún yfir milljón ára gömul. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Bik­ar­vakt: Fylk­is­menn í und­an­úr­slit eftir fram­leng­ingu Síðasti leikur 8-liða úrslita bikarkeppni karla í fótbolta fer fram í dag. Lengjudeildarliðin Fylkir og Grótta mætast í Árbæ. Grótta leiddi 1-0 með marki rétt fyrir hálfleik en Fylkismenn jöfnuðu á 90. mínútu. Að lokum voru Fylkismenn sterkari í framlengingu og unnu 4-2 sigur. Fylkir mætir Aftureldingu í undanúrslitunum, en Mosfellingar eru einnig í Lengjudeild. Í hinni viðureigninni mætast Breiðablik og Víkingur. Hér fylgdumst við með öllu því helsta í lifandi leikdagsvakt. Hér að neðan má sjá mörkin. SAMANTEKT Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Ný inni­sund­laug á Ak­ur­eyri opnar í sumar Framkvæmdir hafa staðið á innilaug Sundlaugar Akureyrar í nær tvö ár. Forstöðumaður sundlauga Akureyrar segir einungis nokkrar vikur í opnun á nýrri og bjartari innilaug með betra aðgengi. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál „Staðan er öfug við það sem Ragnar Þór er að segja“ Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir óraunhæft að leysa verðbólguna með því að fyriræki landsins lækki eða frysti verð líkt og félagsmálaráðherra lagði til í gær. Hann kallar þess í stað eftir samhentu átaki. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Öfl­ug­ur El Niño í upp­sigl­ingu Veðurfyrirbærið El Niño er í uppsiglingu og stefnir í það verði einkar öflugt í ár. El Niño getur haft áhrif á hitafar, úrkomu og veðuröfgar víða um heim. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Líkur á að samn­ing­ur verði full­klár­að­ur á næsta sól­ar­hringn­um Forsætisráðherra Pakistans segir líkur á að friðarsamningur milli Bandaríkjanna og Írans verði undirritaður á næsta sólarhringnum. Ísraelsher hefur drepið minnst fimm í Líbanon í morgun og skipað íbúum tuttugu bæja og þorpa að flýja. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lög­regla segir nokkur dyra­varða­fyr­ir­tæki starfa án leyfis Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir dyraverði sem starfi á skemmtistöðum án starfsleyfis oft vinna fyrir stór fyrirtæki. Lögreglan á höfurborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. 13. júní 2026 kl. 11:22ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Nafn Trumps fjar­lægt af menn­ing­ar­mið­stöð Nafn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta var fjarlægt af Kennedy Center, menningarmiðstöð í Washington, hálfu ári eftir að því var bætt við. 13. júní 2026 kl. 11:18ÍÞRÓTTIR Fótbolti Jón Þór tekur við Stjörn­unni Jón Þór Hauksson er nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta. Hann tekur við liðinu af Jökli Elísabetarsyni sem var látinn fara í gær. Liðið er í níunda sæti Bestu deildarinnar og dottið úr bikarnum eftir tap fyrir Aftureldingu á miðvikudag. 13. júní 2026 kl. 9:31MENNING OG DÆGURMÁL Menntamál Þurfum skóla sem skilur Krakkar sem passa ekki beint inn í boxið verða útundan í skólakerfinu og vandanum er velt á milli skólastiga grunnskólans í stað þess að taka á honu

Share this article