Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, segist íhuga að flytja frá Bretlandi vegna skattastefnu ríkisstjórnar Verkamannaflokksins. Hann ferðaðist nýlega til Mílanó til að skoða fasteignir. Í viðtali við The Sunday Times segir hann að „allur pakkinn“ í Bretlandi þegar kemur að erfðafjárskatti, fjármagnstekjuskatti og pólitískum óstöðugleika fæli hann frá því að búa áfram og fjárfesta á Bretlandi. Róbert flutti til London frá Íslandi árið 2019. Hann opnaði aðalskrifstofu fjárfestingarfélags síns Aztiq í Hammersmith-hverfinu í London árið 2021. „Það er bara þannig að allt kerfið hefur breyst svo mikið sem gerir það mjög erfitt, ekki bara fyrir útlendinga að koma hingað, heldur líka fyrir efnað heimafólk sem hefur alltaf verið hérna, að halda einfaldlega áfram að búa hér,“ segir Róbert. „Þegar ég funda með skattaráðgjafa mínum tvisvar til þrisvar á ári um hvaða breytingar kunni að verða [á skatta umhverfinu] þá eru þær út um allt, sem er ekki hvetjandi fyrir neinn sem býr hérna.“ Róbert, sem er 56 ára gamall, segist ekki líta svo á að bresk stjórnvöld styðji við atvinnulíf í landinu og að það skorti pólitískan stöðugleika. Útganga Breta úr Evrópusambandinu hafi reynst iðnaði og fyrirtækjum í landinu krefjandi og ofan á það bætist nú við íþyngjandi skattalöggjöf. „Við sjáum þetta í mörgum löndum, að stjórnmálamenn eiga það til að sveiflast til og frá eftir því hvernig vindar blása hverju sinni. En þegar uppi er staðið eru lönd byggð upp út frá atvinnu, störfum, helst vel launuðum störfum, og verðmætasköpun. Vonandi er síðan hægt að njóta góðs af því að hafa öflugt atvinnulíf í landinu.“ Róbert, sem er ekki svokallaður „non-dom“, segist hafa flutt til Bretlands „á móti straumnum þegar Brexit átti sér stað“ vegna hentugrar staðsetningar höfuðborgarinnar fyrir viðskiptaferðir til Asíu, Bandaríkjanna og Mið- og Austur-Evrópu. Hann bætir einnig við að börn hans séu í heimsklassa skólum í London. „London er einhver stórkostlegasta borg til að búa í. Hún hefur frábæra menntun, frábæra sögu og í raun allt upp á að bjóða,“ segir Róbert. Hann segir þó að í heimi frjálsra fjármagnsflutninga geti maður í raun búið hvar sem er. Íþyngjandi skattastefna og regluverk muni því í reynd aðeins fæla fólk í burtu. „Við erum að fara með mikið fjármagn, við erum að fara héðan með mikið af störfum. Það sorglega er að við lítum ekki á Bretland sem góðan stað fyrir framleiðslustarfsemi, rannsóknir og þróun eða neitt slíkt.“ Róbert kveðst þeirrar skoðunar að Brexit hafi verið mistök út frá hagsmunum atvinnulífsins þar sem Bretland hafi verið samþætt Evrópu. Útganga úr ESB hafi því valdið miklu raski, erfiðleikum og óvissu. Hann segir að í kjölfar Brexit nefni margir af stærstu bönkunum ekki lengur Bretland sem hentugan stað til skráningar á hlutabréfamarkað.