Christopher Rokos, milljarðamæringur og stofnandi vogunarsjóðsins Rokos Capital Management, hefur ákveðið að flytja skattalega heimilisfesti sína frá Bretlandi til Grikklands. Hann bætist þar með í hóp auðugra einstaklinga sem hafa yfirgefið Bretland eftir breytingar á skattkerfi landsins. Rokos var samkvæmt lista The Sunday Times þriðji hæsti skattgreiðandi Bretlands árið 2025 og greiddi um 330 milljónir punda í skatta. Miðað við um 163 krónur fyrir pundið jafngildir það tæplega 54 milljörðum króna. Til samanburðar segir Telegraph skattgreiðslur hans á síðasta ári hafa jafngilt samanlögðum skattgreiðslum um 21 þúsund breskra heimila. Meðalskattgreiðsla heimilis er þar sögð um 15.700 pund á ári, eða um 2,6 milljónir króna. Rokos er 55 ára og einn þekktasti fjármálamaður Lundúnaborgar. Vogunarsjóður hans stýrir meira en 20 milljörðum dala og eignir hans sjálfs eru metnar á um fjóra milljarða dala samkvæmt Bloomberg Billionaires Index. Grikkland býður fasta skattlagningu Ákvörðun Rokos kemur í kjölfar þess að breska ríkisstjórnin afnam svonefnt non-dom-fyrirkomulag í apríl í fyrra. Eftir breytinguna eru erlendar tekjur einstaklinga sem búa í Bretlandi einnig skattlagðar þar. Grikkland býður hins vegar eigendum mikilla erlendra tekna sérstakt fyrirkomulag þar sem greiddur er fastur skattur, 100 þúsund evrur á ári, af erlendum tekjum í allt að 15 ár. Miðað við þá upphæð sem Telegraph gefur upp, um 86 þúsund pund, jafngildir skatturinn um 14 milljónum króna á ári. Til að eiga rétt á fyrirkomulaginu þurfa erlendir einstaklingar jafnframt að fjárfesta að minnsta kosti 500 þúsund evrur í Grikklandi, til dæmis í fasteignum, fyrirtækjum eða verðbréfum. Gaf Cambridge 31 milljarð Rokos hefur ekki aðeins verið stór skattgreiðandi heldur einnig einn stærsti góðgerðargjafi Bretlands. Fyrr á þessu ári gaf hann Cambridge-háskóla 190 milljónir punda til að koma á fót Rokos School of Government. Sú fjárhæð jafngildir um 31 milljarði króna miðað við núverandi gengi pundsins. Hann stendur jafnframt að umfangsmiklum endurbótum á Tottenham House, sögufrægu setri sínu í Wiltshire, sem talið er hafa um eitt hundrað herbergi. Framkvæmdirnar eru metnar á 175 milljónir punda, eða um 28,5 milljarða krón Rokos stofnaði Rokos Capital Management árið 2015 eftir að hafa áður starfað hjá Brevan Howard. Þar hafði hann unnið með Alan Howard, stofnanda sjóðsins, sem sjálfur flutti frá Bretlandi til Sviss á síðasta ári. Fleiri auðmenn hafa farið Brottför Rokos er sú nýjasta í röð sambærilegra tilfella eftir breytingarnar á breska skattkerfinu. Íslenski fjárfestirinn Björgólfur Thor Björgólfsson flutti skattalega heimilisfesti sína frá Bretlandi til Ítalíu á síðasta ári. Þar geta erlendir auðmenn greitt fastan 300 þúsund evra ársskatt af erlendum tekjum. Guillaume Pousaz, stofnandi Checkout.com, og egypski milljarðamæringurinn Nassef Sawiris hafa einnig yfirgefið Bretland eftir breytingarnar. Telegraph tengir þróunina við vaxandi áhyggjur meðal auðugra einstaklinga af frekari skattahækkunum. Ný fjárlög verða kynnt í Bretlandi 28. október og stjórnvöld hafa ekki útilokað frekari hækkun skattbyrðar. Breska ríkisstjórnin hefur hins vegar hafnað því að brottflutningur einstakra auðmanna sýni að landið sé orðið óaðlaðandi fyrir fyrirtæki og fjárfesta. Rokos hefur sjálfur ekki tjáð sig opinberlega um ákvörðunina.