Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tvöfalda hagnað þrátt fyrir erfiðan annan fjórðung

Read Full Article →

Hagnaður Iceland Seafood International á fyrri helmingi ársins nam 318 milljónum króna, eða 2,2 milljónum evra, og meira en tvöfaldaðist frá sama tímabili í fyrra þegar hann nam 158 milljónum króna. Rekstrartekjur jukust um tæp 17% og námu 39,4 milljörðum króna. Félagið birti uppgjör annars ársfjórðungs eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Hagnaður annars ársfjórðungs nam 141 þúsund evrum, samanborið við 2,1 milljón evra á þeim fyrsta. Tap fyrir skatta nam 374 þúsund evrum, eftir 3,3 milljóna evra hagnað fyrir skatta á fyrsta fjórðungi. Sala á öðrum ársfjórðungi nam 126,9 milljónum evra og jókst um tæp 11% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA dróst hins vegar saman úr 3,9 milljónum evra í 2,6 milljónir. „Fyrsti ársfjórðungur var sérstaklega sterkur en annar ársfjórðungur reyndist krefjandi. Aukin samkeppni um hráefni, hærri flutnings- og dreifingarkostnaður auk einskiptis niðurfærslu á viðskiptakröfu í frönsku starfseminni höfðu neikvæð áhrif á afkomu tímabilsins. Betri afkoma samanborið við fyrra ár skýrist jafnframt af lægri fjármagnskostnaði 2026.“ segir Ægir Páll Friðbertsson , forstjóri Iceland Seafood. „Niðurstaða fyrri árshelmings er ánægjuleg og hagnaður fyrir skatta jókst um 26,1% samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Sala jókst í öllum starfseiningum félagsins, studd af sterkri eftirspurn á hvítfiski og auknu magni uppsjávarafurða í kjölfar góðrar loðnuvertíðar og sterkrar sölu á síld,“ Sjá einnig Hagnaður Iceland Seafood tvöfaldaðist Mikill vöxtur í sölu og dreifingu Mestur söluvöxtur var á sölu- og dreifingarsviði félagsins þar sem tekjur jukust um 31,2% milli ára. Söluaukningin skýrðist meðal annars af mikilli eftirspurn eftir hvítfiski og aukinni sölu á loðnu og síld. Hagnaður sviðsins fyrir skatta dróst þó saman úr 2,1 milljón evra í 1,4 milljónir. Tekjur starfseminnar í Suður-Evrópu jukust um 3,8% þrátt fyrir minna sölumagn. Hagnaður fyrir skatta jókst úr 2,2 milljónum evra í 2,9 milljónir. Í Norður-Evrópu jókst salan um 14% en afkoman fyrir skatta var nær óbreytt milli ára. Félagið heldur afkomuspá ársins óbreyttri og gerir ráð fyrir 1,7 til 1,9 milljarða króna hagnaði fyrir skatta af reglulegri starfsemi. Gert er ráð fyrir að þorskverð haldist hátt vegna takmarkaðs framboðs en að laxaverð verði að mestu sambærilegt við síðasta ár. Ægir Páll segir áhrif fjárfestingar félagsins í útgerð í Argentínu koma fram á þriðja ársfjórðungi, en veiðar á argentínskri rækju hófust í júní.

Share this article