Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hildi liggur ekki lífið á

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.5.2026 | 11:56 Hildi liggur ekki lífið á Hildur mun örugglega ekki vilja láta stilla sér upp í valþröng tveggja kosta. mbl.is/Eyþór Árnason Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Telur ákall vera um breytingar Stefnir í eins manns minnihluta í Grindavík „Guði sé lof fyrir ömmur, afa og eiginmanninn“ Einar boðaður á fund: „Þetta fer nú rólega af stað“ Miðflokkurinn fyrsti valkostur » Fleiri tengdar fréttir Engar eiginlegar þreifingar eru hafnar um meirihlutamyndun í borgarstjórn Reykjavíkur, enda notuðu nýkjörnir borgarfulltrúar gærdaginn helst til hvíldar og til þess að meta stöðuna hver í sínum hóp. Þar blasir enda við að það er Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, sem hefur valið á meirihluta í hendi sér og virðist eiga borgarstjórastólinn vísan. Fjölmargir meirihlutar koma til greina í borgarstjórn Reykjavíkur eftir borgarstjórnarkosningar á laugardag, en raunin er sú að ekki virðist hægt að mynda meirihluta án hinna níu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Á því er að vísu einn fræðilegur möguleiki, en hann útheimtir sættir og samkomulag milli Viðreisnar og Miðflokks, og virðist harla fjarlægur eins og sakir standa. Þreifingar varla hafnar Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst var lítið um símtöl milli oddvita framboðanna í gær. Flestir litu enda svo á að boltinn væri hjá Hildi, verðandi borgarstjóra. Hinn nýi borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna hittist raunar heima hjá Hildi suður á Melum í gær til þess að fara yfir stöðuna, en ámóta leynifundur átti sér víst stað heima hjá Pétri Marteinssyni oddvita Samfylkingar sem á heima í þarnæsta húsi. Mál álitsgjafa í fjölmiðlum í gær var að Hildur stæði frammi fyrir tveimur augljósum kostum í meirihlutamyndun, en það þarf þó ekki að vera svo einfalt. Ýmsar merkjasendingar áttu sér stað, en ekki allar fyrirsjáanlegar. Engum kemur á óvart að Einar Þorsteinsson í Framsóknarflokki sé tilbúinn í meirihlutaviðræður, en það flaug líka fyrir að Vinstrið með sína tvo fulltrúa væri ekki fráhuga því að kanna hinn nýja veruleika í reykvískum stjórnmálum. Kort/mbl.is Hildur ræðir við alla oddvita Fyrir sitt leyti liggur Hildi ekki lífið á og hefur minnt nána samstarfsmenn á að stjórnmál séu list hins mögulega. Hennar markmið sé að mynda traustan og starfhæfan meirihluta, sem geti tekið af festu á þeim brýnu verkefnum sem við blasi. Þau verði sum erfið, bæði í framkvæmd og pólitískum skilningi, en þurfi að ganga greitt fyrir sig á fyrstu vikum og mánuðum kjörtímabilsins, eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi kynnt í kosningabaráttunni. Í dag hyggst Hildur gefa sér tíma til þess að ræða við alla oddvita þeirra framboða, sem náðu manni inn í borgarstjórn, bæði til þess að heyra þau sjónarmið, sem menn hafa til meirihlutamyndunar, og til þess að ræða með hvaða móti borgarstjórn allri geti auðnast að auka traust á sér og sínum störfum. Á þeim fundum má gera ráð fyrir því að eiginlegar þreifingar um meirihlutamyndun hefjist af einhverri alvöru, þótt formlegra meirihlutaviðræðna sé tæpast að vænta alveg strax. Nægir meirihlutar í boði Eins og gefur á að líta á myndritinu að neðan hefur Hildur Björnsdóttir úr ýmsu að velja þegar kemur að meirihlutamyndun. Þar hafa tveir kostir helst verið nefndir, annars vegar tveggja flokka meirihluti með Miðflokki og hins vegar þriggja flokka meirihluti með Viðreisn og Framsóknarflokki. Eflaust yrði meirihlutamyndun með Viðreisn og Framsókn auðveldari, þar er vanara fólk við stjórnvölinn og um sumt færri ásteytingarsteinar. Þar skiptir líka máli að Hildur þekkir bæði Einar og Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar ágætlega. Spurningin er þá fremur hvort hún næði samkomulagi um þær víðtæku og djúpstæðu breytingar á stjórnkerfi borgarinnar, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað og munu sumar reynast erfiðar. Þær geta ekki beðið og þurfa að ganga hratt fyrir sig, helst á hveitibrauðsdögunum 100. Að því leyti yrði samstarf við Miðflokkinn eflaust auðveldara að mörgu leyti ef markmiðið er að hrinda þeim breytingum öllum í framkvæmd hratt og örugglega. Um slíkt yrðu Miðflokksmenn tæplega letjandi um neitt og í raun líklegri til þess að vilja meiri og hraðari breytingar ef eitthvað er. Og Ari Edwald oddviti Miðflokksins vanur stjórnandi að auki. Á hinn bóginn heyrist innan úr borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna að þeir hafa áhyggjur af „farangri“ Miðflokksmanna, að slíkur meirihluti myndi sæta endalausum árásum frá vinstri vegna ætlaðrar jaðarstefnu þeirra í ýmsum málum, þótt allir flýti þeir sér að nefna að Ari sé enginn öfgamaður. Engin valþröng Hildur mun hins vegar örugglega ekki vilja láta stilla sér upp í valþröng tveggja kosta, því þeir eru vitaskuld fleiri. Og þessir fyrrnefndu báðir með þann galla að meirihlutinn yrði aðeins einn maður, svo hvor sem væri yrði viðkvæmur fyrir pólitískum uppákomum og gæti verið tekinn í gíslingu af hvaða borgarfulltrúa sem væri. Þá mætti hugsa sér aukinn meirihluta, t.d. með því að hafa Framsóknarflokkinn með í meirihluta með Miðflokknum. Það myndi ugglaust tempra hann ögn og kalla á meiri tillitssemi en ella. En svo gæti Hildur líka gengið á Viðreisn og spurt á hverju útilokun hennar á Miðflokknum byggist. Ef það er eitthvað efnislegt og málefnalegt má leita leiða til þess að jafna þann ágreining en ef það byggist aðeins á óljósum hugmyndum um pólitískt innræti þeirra megi efast um alvöruna þar að baki. Til þessa hafi Viðreisn a.m.k. ekki skirrst við samstarf við pópúlíska flokka með ýmsar skrýtnar skoðanir, eins og Pírata og Flokk fólksins. Með því kynni Hildur að vilja undirstrika að hún láti Viðreisn ekki skáka sér í meirihlutamyndun, minnug þess að fyrir fjórum árum tók Viðreisn þátt í útilokun Sjálfstæðisflokksins við meirihlutamyndun. En sé hún komin á þær slóðir, gæti hún ekki allt eins reynt að mynda stóran og breiðan meirihluta borgaralegra flokka í borgarstjórn, meirihluta Sjálfstæðisflokks, Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknar? Það væri 15 manna meirihluti, nægilega stór til þess að þola bæði ytri ágjafir og innri upphlaup undir sterkum borgarstjóra. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Telur ákall vera um breytingar Stefnir í eins manns minnihluta í Grindavík „Guði sé lof fyrir ömmur, afa og eiginmanninn“ Einar boðaður á fund: „Þetta fer nú rólega af stað“ Miðflokkurinn fyrsti valkostur » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hildi liggur ekki lífið á Telur ákall vera um breytingar Eftirför lögreglu: Ungur „ökufantur“ handtekinn Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Arsenal setur verðmiða á framherjann Umræðan Kosið um viðræður Ráðherraábyrgð og framsetning stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eftirför lögreglu: Ungur „ökufantur“ handtekinn Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Hildi liggur ekki lífið á Telur ákall vera um breytingar Eftirför lögreglu: Ungur „ökufantur“ handtekinn Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Arsenal setur verðmiða á framherjann Umræðan Kosið um viðræður Ráðherraábyrgð og framsetning stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu Stefnir í eins manns minnihluta í Grindavík Eftirför lögreglu: Ungur „ökufantur“ handtekinn Hantaveiruskipið komið til Rotterdam Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta e

Share this article