Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga mjakast úr 5,2% í 5,1%

Read Full Article →

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,07% á milli apríl og maí og hefur nú hækkað um 5,1% á síðastliðnum 12 mánuðum samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga dróst saman um 0,1 prósentustig frá fyrri mánuði þegar hún mældist 5,2%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,13% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 4,6% á síðustu 12 mánuðum. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, svokölluð reiknuð húsaleiga, hafi aukist um 0,6%. Verð á dísel lækkaði um 7,0% og verð á bensíni um 7,3%. Þann 1. maí var virðisaukaskattur á dísel og bensín lækkaður úr 24% í 11%. Ef verð á þessum eldsneytisgjöfum er reiknað með 24% virðisaukaskatti í stað 11% væri verð á dísel 3,9% hærra en fyrir mánuði og verð á bensíni 3,6% hærra. Heildaráhrif virðisaukaskattsbreytingarinnar á vísistölu neysluverðs eru því metin um 0.32% til lækkunar. Spár greiningardeilda bankanna voru ólíkar fyrir aprílmælinguna. Greining Íslandsbanka hafði spáð 0,2% hækkun vísitölunnar og að verðbólga myndi standa í stað og mælast 5,2%. Hagfræðideild Landsbankans spáði 0,13% lækkun vísitölunnar og að verðbólga færi niður í 4,9%. Loks spáði greiningardeild Arion banka að vísitalan myndi hækka um 0,21% og að verðbólga færi upp í 5,3%.

Share this article