Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli júli og ágúst og hefur nú hækkað um 5,6% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni . Ársverðbólga jókst um 0,3 prósentustig frá fyrri mánuði þegar hún mældist 5,3%. Verðbólgumælingin hefur í för með sér að forsenduákvæði kjarasamninga á almennum vinnumarkaði mun virkjast. Í samningunum er ákvæði um að ef verðbólga mælist yfir 4,7% í ágúst þá opnast heimild til að endurskoða samningana og, náist ekki samkomulag um viðbrögð við forsendubresti, segja þeim upp. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,02% milli mánaða og hefur nú hækkað um 5,2% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis jókst um 0,4 prósentustig frá marsmánuði þegar hún nam 4,8%. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að fataútsölur séu víða gengnar til baka og hækkaði verð á fötum um 4,1% milli mánaða. Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,9% og flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 9,6%. Þá hafi gjöld í háskóla hækkað um 15,1% en sú hækkun er að mestu leyti tilkomin vegna hækkunar skráningargjalds í opinberum háskólum úr 75.000 kr í 100.000 kr. Það gjald hækkaði síðast fyrir 12 árum. Greining Íslandsbanka hafði spáð því að verðbólga myndi fara upp í 5,6% í ágúst. Hagfræðideild Landsbankans hafði spáð 5,5% verðbólgu. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 7. október næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 25 punkta, upp í 8,0%, við síðustu vaxtaákvörðun þann 19. ágúst síðastliðinn.