Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga yfir spám í júní

Read Full Article →

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli apríl og júní og hefur nú hækkað um 5,2% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni . Ársverðbólga jókst um 0,1 prósentustig frá fyrri mánuði þegar hún mældist 5,1%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,08% milli mánaða og hefur nú hækkað um 4,8% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis jókst um 0,2 prósentustig frá marsmánuði þegar hún nam 4,6%. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hafi hækkað um 0,6% milli mánaða, flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 20,1% og gistiþjónusta hækkaði um 17,5%. Greining Íslandsbanka hafði spáð því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,7% milli mánaða og að verðbólga myndi hjaðna úr 5,1% í 5,0%. Hagfræðideild Landsbankans hafði spáð því að vísitalan myndi hækka um 0,81% milli mánaða og að verðbólga yrði óbreytt í 5,1 %. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 19. ágúst næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 25 punkta, upp í 7,75%, við síðustu vaxtaákvörðun þann 20. maí síðastliðinn.

Share this article