Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aron Pálmarsson: „Mig langaði að vera aðalþjálfari“

Read Full Article →

Aron Pálmarsson sagði sjálfur, þegar handboltaskórnir fóru á hilluna á síðasta ári, að hann ætlaði sér ekki í þjálfun. Hann var hins vegar mættur í þjálfarateymi FH í vetur og í dag tilkynnti Fimleikafélagið að Aron væri orðinn aðalþjálfari liðsins . En hvað fékk Aron til að skipta um skoðun? „Bara að prófa það,“ sagði Aron. „Það leið ekki á löngu þangað til maður var kominn með bakteríuna og bara erfitt að slíta sig frá þessu. Þannig að ég ákvað bara að fara alla leið í þessu.“ Hann segir að það hafi ekki komið til greina að vera aðstoðarþjálfari áfram, víst hann ætlaði í þetta vildi hann gerast aðalþjálfari. Það hefði jafnvel komið til greina að taka við öðru liði en uppeldisklúbbnum þótt það hefði að sjálfsögðu orðið erfitt. Nánar er rætt við Aron í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article