Aron Pálmarsson mun taka við stjórnartaumunum hjá karlaliði FH á næsta tímabili. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem FH hélt í dag. Aron hefur verið í þjálfarateymi liðsins undanfarið ár sem aðstoðarþjálfari og fær nú talsvert stærra hlutverk. Sigursteinn Arndal, sem hefur verið aðalþjálfari liðsins frá 2019, mun nú verða aðstoðarþjálfari. Kapparnir munu því hafa stólaskipti. Aron á að baki langan landsliðs- og atvinnumannaferil. Hann spilaði 182 leiki og skoraði í þeim 695 mörk. Þá kom hann víða við í atvinnumennskunni því Aron hefur leikið í Danmörku, Ungverjalandi, Þýskalandi, Spáni og að sjálfsögðu Íslandi. Aron er uppalinn FH-ingur og byrjaði meistaraflokksferilinn þar. Þá varð Aron Íslandsmeistari með liðinu árið 2024. Fréttin verður uppfærð með viðtali við Aron.