Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sterkur lokakafli hjá FH í fyrsta leiknum með Aron sem þjálfara

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir 12. febrúar 2026 kl. 23:10ÍÞRÓTTIR Handbolti Sterk­ur loka­kafli hjá FH í fyrsta leikn­um með Aron sem þjálf­ara Jóhann Páll Ástvaldsson Aron í leik með FH á síðasta tímabili. RÚV / Mummi Lú Aron Pálmarsson var á hliðarlínunni í fyrsta leik sínum í þjálfarateymi FH í efstu deild karla í handbolta í kvöld. FH vann endurkomusigur á Selfossi. Liðið vann lokakaflann með fimm mörkum og niðurstaðan var þriggja marka sigur, 33-30. Selfyssingar höfðu forystu, 27-25, þegar skammt var eftir en þá gáfu FH-ingar í. FH er í öðru sæti deildarinnar en Selfoss í áttunda sæti. Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Ekki inn­rit­að í fjóra leik­skóla vegna fram­kvæmda Nýir nemendur verða ekki teknir inn í leikskólana Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði í Reykjavík við næstu úthlutun leikskólaplássa. Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Vöggu­stofu­börnum tryggð sál­fræði­þjón­usta og óska sann­girn­is­bóta Reykjavíkurborg hefur samið við þrjú fyrirtæki um geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu við börn sem voru Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins 1974–1979. Hópur þeirra hefur sent forsætisráðherra bréf og farið fram á sanngirnisbætur. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Þorra­blót­in eru ein­stak­ir við­burð­ir Þorrinn, hinn forni fjórði mánuður vetrar, stendur sem hæst. Af því tilefni flykkjast landsmenn á þorrablót og skemmta sér og öðrum. Þetta menningarfyrirbæri var krufið í Kastljósi. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Rússar hóta við­brögð­um gegn „Varð­stöðu á norð­ur­slóð­um“ Sergei Lavrov, utanríkisráðherra, sakar NATO um að breyta norðurslóðum í átakasvæði. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Inn­kalla kjúk­linga­læri vegna salm­on­ellu Fréttastofa RÚV Stjörnugrís hefur innkallað Kjúklingalæri, skinn og beinlaus, með lotunúmer 8001-26035 vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið biður neytendur sem hafa keypt slíkan kjúkling að skila honum í viðkomandi verslun. Það tekur þó fram „til að fyrirbyggja áhyggjur neytenda“ að kjúklingurinn sé öruggur til neyslu ef hann er eldaður í gegn og bendir á að safi frá hráum kjúklingi eigi ekki að komast í snertingu við aðra matvöru. Kjúklingalæri frá Stjörnugrís. Stjörnugrís Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Óskaði trún­að­ar­upp­lýs­inga um ís­lenska banka­hrun­ið og deildi með arf­taka Kaup­þings í Lúx­em­borg Andrew Mountbatten-Windsor fékk upplýsingar um samskipti Breta og Íslendinga eftir bankahrun úr breska stjórnkerfinu og deildi þeim með Jonathan Rowland sem yfirtók starfsemi Kaupþings í Lúxemborg. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Hvað er planið með Vest­ur­bakk­ann? Ef ákvarðanir öryggisráðs Ísraels ganga eftir verður töluvert auðveldara fyrir Ísrael að taka yfir enn meira landsvæði á Vesturbakkanum. Ólöglegum landtökubyggðum hefur fjölgað á ofurhraða eftir að sitjandi ríkisstjórn tók við völdum 2022. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Ísland gegndi lyk­il­hlut­verki í að fá krullu­íþrótt­ina inn á Ól­ymp­íu­leika Krulluíþróttin er meðal vinsælustu greina Vetrarólympíuleikanna. Keppt hefur verið samfellt í greininni á öllum leikum síðan árið 1998 og Ísland gegndi lykilhlutverki í því. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Kvikn­aði í bústað við Ell­iða­vatn Brynjólfur Þór Guðmundsson Eldur kviknaði í bústað við Elliðavatn í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins skömmu fyrir átta logar eldur í gömlum, mannlausum bústað. Slökkviliðsmenn eru komnir á staðinn og sjá til þess að eldurinn breiðist ekki út. Slökkviliðsbílar. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Borgin selur Topp­stöð­ina Borgarráð samþykkti í gær að selja Toppstöðina í Elliðaárdal. Kaupandinn greiðir 440 milljónir fyrir húsið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Barist um fram­tíð Fram­sókn­ar­flokks­ins Lilja Alfreðsdóttir er almennt talin sigurstranglegri í formannskjöri Framsóknarflokksins um helgina. Framsóknarmenn eru þó á því að slagurinn verði jafnari en útlit var fyrir. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leiklist Við­ur­kenn­ing að ein­hver standi á sviði og segir sögu sem þú tengir við Í sýningunni Þegar ég sé þig, sé ég mig er varpað ljósi á reynsluheim Íslendinga af blönduðum uppruna. Það geti verið einmanalegt að halda að maður sé einn um lífsreynslu og því gott að spegla sig við einhvern á sviði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tvær lík­ams­árás­ir Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tveimur líkamsárásum á kvöld- og næturvaktinni. Minni háttar meiðsl hlutust af líkamsárás í Hafnarfirði og afgreiddi lögregla það mál á staðnum. Kona í annarlegu ástandi var handtekin í Grafarvogi eftir líkamsárás og hún flutt í fangaklefa. Tveir voru handteknir fyrir þjófnað úr verslun í Hafnarfirði og nokkrir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, akstur undir áhrifum eða fyrir að fara yfir á rauðu ljósi hér og þar á höfuðborgarsvæðinu. Hafnarfjörður. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Allt að fimmt­án stiga frost Frostið verður í aðalhlutverki í veðrinu í dag en éljagangur verður norðantil og með suðausturströndinni. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar ÓL-dagur 8: Dagur keppir í skíða­göngu Dagur Benediktsson keppir í 10 kílómetra skíðagöngu karla í dag. Keppnin hefst klukkan 10.50 og er sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Keppt er til fimm verðlauna í dag. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Long vonast eftir að fá annað tæki­færi hjá Ís­lend­ing­um William Long, sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á Íslandi, baðst afsökunar á ummælum sínum um landið þegar hann kom fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings í gær. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Fyrsta liþ­ínnáma sinnar teg­und­ar í Evrópu tekin í notkun Námufyrirtækið Keliber sprengdi formlega fyrstu sprenginguna í Syväjärvi-námunni í Vestur- Finnlandi í gær. Mikil eftirspurn er eftir liþíni á heimsvísu og er framleiðslunni ætlað að draga úr þörf á innflutningi frá Kína. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Madagaskar 38 fórust í felli­byl og sex er saknað Fellibylurinn Gezani olli gríðarlegri eyðileggingu í borginni Toamasina á Madagaskar á þriðjudag. Að minnsta kosti 38 fórust, sex manns er saknað og 374 eru slasaðir. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Vís­bend­ing­ar um gervi­verk­töku í ferða­þjón­ustu Eftirlitsátak Vinnustaðaeftirlits ASÍ leiddi í ljós að nokkuð er um gerviverktöku í ferðaþjónustu. Þá sinntu kínverskir fararstjórar í sumum tilvikum verkefnum leiðsögumanna án þess að hafa tilskilin atvinnuréttindi hér á landi. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bangladess Stefn­ir í sigur Þjóð­ar­flokks Bangla­dess í kosn­ing­un­um Brynja Dögg Friðriksdóttir Talning atkvæða er hafin í þessum fjölmennustu kosningum í heiminum. AP / Mahmud Hossain Opu Sjónvarpsstöðvar spá Þjóðarflokki Bangladess, yfirgnæfandi sigri í kosningum sem voru í landinu í gær. Úrslit hafa ekki enn verið tilkynnt formlega. Þjóðarflokkur Bangladess er hægra megin við miðju og mældist með mest fylgi í skoðanakönnunum fyrir kosningarnar. 150 þingsæti þarf til að ná meirihluta á þingi, og sjónvarpsstöðvarnar Jamuna og Somaoy greindu frá því að flokkurinn væri hefði þegar tryggt sér 197 sæti. Kosningarnar í Bangladess eru fjölmennustu kosningar í heiminum með120 milljónir manna á kjörskrá. 13. febrúar 2026 kl. 0:04ERLENDAR FRÉTTIR Albanía Leik­kona stefn­ir al­banska ríkinu fyrir að stela and­liti hennar Albanska gervigreindarspjallmennið Diella var kynnt til sögunnar í september. Leikkonan sem spjallmennið er byggt á hefur kært albanska ríkið fyrir að stela persónueinkennum hennar. 12. febrúar 2026 kl. 23:13ÍÞRÓTTIR Körfubolti KR á mik­illi sigl­ingu Jóhann Páll Ástvaldsson Þórir Guðmundur Þorbjarnarson. Rúv / Mummi Lú KR hefur unnið átta leiki í röð í efstu deild karla í körfubolta. Liðið vann Álftanes 87-80 í kvöld og er í sjötta sæti með 20 stig. Álftanes er í áttunda sæti með 14 stig. KR gaf í undir lokin eftir nokkuð jafnan leik. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fór fyrir KR-ingum með 19 stig, sex fráköst og fjórar stoðsendingar. Valsmenn unnu 17 stiga sigur á botnliði ÍA. Valur er með 22 stig í fjórða sæti en nýliðar ÍA verma botnsætið með sex stig. 12. febrúar 2026 kl. 23:01ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Banda­rík­in draga úr hömlum á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda Kvaðir á losun gróðurhúsalofttegunda frá bílum hafa verið felldar niður í Bandaríkjunum. Vísindaleg niðurstaða sem var notuð til grundvallar regluverki um losunina hefur verið afturkölluð. 12. febrúar 2026 kl. 22:36INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Sjóvá skilar ríf­lega helm­ingi minni hagn­aði Hagnaður tryggingafélagsins Sjóvá af fjárfestingarstarfsemi var töluvert lægri árið 2025 en árið á undan. Forstjóri félagsins segir minni tekjuvöxt skýrast bæði af aukinni samkeppni og minni aukningu í umsvifum viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði. 12. febrúar 2026 kl. 22:25INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Lands­rétt­ur stað­festi átta ára dóm í met­am­fet­am­ín­mál­inu Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sexmenningum sem ákærð voru fyrir að flytja til landsins 5,8 kíló af metamfetamínkristöllum. 12. febrúar 2026 kl. 22:12INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Tókust á um ein­ok­un áfeng­is­sölu Lára G. Sigurðardóttir og Elías Blöndal Guðjónsson hafa skipst á skoðunum um áfengi og lýðheilsu undanfarna daga. Þau voru gestir í Kastljósi í kvöld og ræddu aðgengi að áfengi og áhrif þess á samfélagið. 12. febrúar 2026 kl. 21:15INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Sam­an­lagð­ur hagn­að­ur bank­anna þriggja nærri 94 millj­arð­ar króna Samanlagður hagnaður bankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, var nærri 94 milljarðar króna í fyrra. Fjármálaráðherra vill sjá harðari samkeppni svo eitthvað af hagnaðinum skili sér til neytenda. 12. febrúar 2026 kl. 20:58ÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Brotn­aði hrotta­lega fyrir 10 mán­uð­um en skil­aði gulli Hin ítalska Federica Brignona vann til gullverðlauna í risasvigi

Share this article