Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Steinunn Anna og Arnór Steinn handhafar nýræktarstyrkja 2026

Read Full Article →

Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir og Arnór Steinn Ívarsson hlutu nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta í Gunnarshúsi í gær. Steinunn fær styrk fyrir smásagnasafnið Himinbjörg og Arnór fyrir skáldsöguna Hreiður. Þetta er í 19. sinn sem nýræktarstyrkir eru veittir og styrkupphæð er 600 þúsund krónur. Víðsjá tók höfundana tali og þeir segja það mikinn heiður að hljóta þennan styrk. Sögur sex kvenna Steinunn segir Himinbjörg innihalda sögur um sex konur. „Þetta eru leitandi konur, þetta eru sterkar konur, þær eru viðkvæmar. Þær eru eins og íslenskar konur í dag, sterkar og veikar og gera allt mögulegt til að halda sínu striki en eru samt með ýmsar brotalamir úr æsku og þær eru að finna sig í tilverunni. Svo er náttúrlega eins og í öllum íslenskum sögum, þá eru draugar og huldufólk og draumar spila stóran þátt.“ Dularfull hrollvekja í Norðurmýri Bók Arnórs er hrollvekja sem gerist í Norðurmýrinni í Reykjavík. „Ég hugsa rosa mikið um eðlilegt fólk í óeðlilegum aðstæðum. Það er eitthvað sem ég pæli í á hverjum einasta degi,“ segir hann. Bókin fjallar um þrjá karaktera og einn þeirra gegnir embætti forsætisráðherra í gerspilltri alræðisstjórn þrátt fyrir að hafa engan áhuga á því. Nálgast skrifin á ólíkan hátt Steinunn og Arnór nálgast skrifin með frekar ólíkum hætti. „Ef ég ætla að skrifa þá fer ég í sund og svo get ég sest við skriftir eftir kvöldmat. Ef ég er spennt þá get ég setið til tólf,“ segir Steinunn sem rekur fyrirtæki með manninum sínum á daginn. „Ég dáist að því að vera með þetta prógramm, að geta farið í sund og sest svo niður. Það hljómar ógeðslega næs,“ segir Arnór. „Mig langar alltaf að stúka af tíma til að setjast niður og skrifa en það gerist aldrei. Ég fæ flugu í hausinn og þá þarf ég bara að afsaka mig frá því sem ég er að gera og tylla mér einhvers staðar með tölvuna og skrifa.“ Tveir höfundar hlutu nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta til að vinna að smásagnasafni með sögum um sex konur og dularfullri hrollvekju sem gerist í Norðurmýri. Það er mikill heiður að hljóta styrkinn, segja höfundarnir. Melkorka Ólafsdóttir ræddi við Steinunni Önnu Gunnlaugsdóttur og Arnór Stein Ívarsson í Víðsjá. Viðtalið má finna í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article