Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Höfðu betur gegn Skattinum og skila 1,1 milljarði til hlut­hafa

Read Full Article →

Fyrr­verandi hlut­hafar Kerecis fá um 1,1 milljarð króna til viðbótar vegna skattaúr­skurðar sem fallið hefur félaginu í hag í kjölfar sölunnar til danska heil­brigðis­vöru­fyrir­tækisins Colop­last árið 2023. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Guð­mundur Fer­tram Sigur­jóns­son, stofnandi og for­stjóri Kerecis, sendi fyrr­verandi hlut­höfum félagsins í kvöld. Við sölu Kerecis til Colop­last varð til kostnaður hjá félaginu vegna upp­gjörs á út­gefnum kaupréttum starfs­manna og áskriftarréttindum. Óvissa var um hvort ís­lensk skatt­yfir­völd myndu fallast á að sá kostnaður væri frádráttar­bær frá skatti og var því óskað eftir úr­skurði skatt­yfir­valda. Nú liggur niður­staðan fyrir. Í póstinum segir Guð­mundur Fer­tram að ís­lensk skatt­yfir­völd hafi stað­fest að kostnaðurinn, sem nemur um 5,5 milljörðum króna, sé frádráttar­bær hjá Kerecis. Það leiðir til þess að um 1,1 milljarður króna verður greiddur til fyrr­verandi hlut­hafa félagsins. Sam­kvæmt gögnum sem Við­skipta­blaðið hefur undir höndum nemur fjár­hæðin, að teknu til­liti til kostnaðar og frádráttar, um 143 krónum á hlut. Heildar­fjár­hæðin er áætluð um 1,1 milljarður króna, eða um 8,9 milljónir dala miðað við gengi Seðla­banka Ís­lands 29. maí. Guð­mundur Fer­tram tekur fram í póstinum að niður­staðan þýði ekki að Colop­last greiði hærra verð fyrir Kerecis. Um sé að ræða skatta­lega niður­stöðu sem hafi áhrif á upp­gjör til fyrr­verandi hlut­hafa. Greiðslur verða inntar af hendi síðar og segir í póstinum að hlut­hafar þurfi ekki að aðhafast að svo stöddu. Þeir eru þó beðnir um að tryggja að áður gefnar ban­ka­upp­lýsingar í Bandaríkja­dölum séu réttar og upp­færðar. Kerecis var selt Colop­last árið 2023 í einum stærstu fyrir­tækja­við­skiptum ís­lenskrar við­skiptasögu. Félagið þróar og fram­leiðir sára­með­ferðar­vörur úr fisk­roði á Ísafirði og hefur á síðustu árum vaxið hratt á alþjóð­legum mörkuðum, einkum í Bandaríkjunum. Í póstinum til hlut­hafa segir Guð­mundur Fer­tram að veg­ferð Kerecis frá kaupunum hafi verið bæði kraft­mikil og gefandi. Þeir sem fylgist með árs­fjórðungs­upp­gjörum Colop­last hafi séð að Kerecis hafi staðið undir væntingum markaðarins síðustu tvö ár og verið sá hluti sam­stæðunnar sem vaxið hafi hraðast. Kerecis hefur haldið áfram að vaxa þrátt fyrir miklar breytingar á bandaríska markaðnum fyrir líftækni­legar sára­vörur. Sjá einnig Kerecis vex þrátt fyrir „markaðs­ham­farir“ í Bandaríkjunum Líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá um miðjan mánuð jók félagið heildar­tekjur sínar lítil­lega á síðasta árs­fjórðungi, þrátt fyrir að göngu­deildar­markaðurinn í Bandaríkjunum hefði dregist veru­lega saman. Á sama tíma og tekjur helstu keppi­nauta Kerecis á göngu­deildar­markaði drógust saman um 50 til 63% nam sam­dráttur Kerecis á þeim markaði 41%. Félagið kom því betur út úr breytingunum en helstu saman­burðarfélögin. Mikilvægara fyrir undir­liggjandi stöðu félagsins er þó að sala Kerecis vegna með­ferðar á inni­liggjandi sjúklingum á sjúkra­húsum jókst um 18% á sama tíma. Það var mesti vöxtur meðal helstu keppi­nauta félagsins á þeim markaði. Til saman­burðar var enginn vöxtur hjá Orga­nogenesis á legu­deilda­markaði, 13% vöxtur hjá MiMedX og 14% vöxtur hjá Integra. Kerecis jók því markaðs­hlut­deild sína bæði á göngu­deildum og legu­deildum sjúkra­húsa, sam­kvæmt upp­lýsingum sem Við­skipta­blaðið hefur áður fjallað um. Í póstinum til fyrr­verandi hlut­hafa segir Guð­mundur Fer­tram að breytingar á bandaríska endur­greiðslu­um­hverfinu hafi haft áhrif á vöxt í göngu­deildar­hluta starf­seminnar, sem sé minni hluti rekstrar Kerecis. Vöxtur vegna með­ferðar á inni­liggjandi sjúklingum hafi hins vegar áfram verið traustur og tveggja stafa. Hann segir að búist sé við að heildar­vöxtur Kerecis taki aftur við sér á næstu fjórðungum. Það muni styrkja stöðu félagsins sem hraðast vaxandi rekstrar­einingar Colop­last. Breytingarnar á bandaríska endur­greiðslu­kerfinu hafa engu að síður haft veru­leg áhrif á markaðinn. Göngu­deildar­markaðurinn fyrir líftækni­legar sára­vörur dróst saman úr um 13 milljörðum dala í 2,7 milljarða dala milli árs­fjórðunga. Guð­mundur Fer­tram lýsti því áður í sam­tali við Við­skipta­blaðið sem „markaðs­ham­förum“. Kerecis virðist þó hafa náð að verja stöðu sína betur en margir keppi­nautar, ekki síst vegna þess að megin­hluti tekna félagsins kemur frá legu­deildum sjúkra­húsa, þar sem breytingarnar á endur­greiðslum vegna göngu­deildarþjónustu hafa ekki sömu áhrif. Guð­mundur Fer­tram segir þó mestu skipta hvaða áhrif vörur félagsins hafi á sjúklinga. Fleiri sjúklingar um allan heim geti ár frá ári nýtt vörur fram­leiddar á Ísafirði í bata­ferli sínu. Að baki hverri með­ferð sé sjúklingur sem berjist við að ná bata, komast heim, endur­heimta hreyfi­getu eða lifa með minni verkjum, segir Guð­mundur Fer­tram í póstinum. Hann segist þakk­látur fyrir að starf­semi í litlum bæ á Vest­fjörðum hjálpi sjúklingum víða um heim að gróa og ná bata.

Share this article