Norlandair hagnaðist um 114 milljónir króna í fyrra, samanborið við 101 milljón árið áður. Tekjur jukust um 17% milli ára og námu 2.987 milljónum. Ársverkum fjölgaði um 10 milli ára og voru 47 talsins. Norlandair sinnir sérhæfðu leiguflugi á Grænlandi auk þess að fljúga í áætlunarflugi á minni flugvelli. Félagið tók í ársbyrjun 2024 við sjúkraflugi innanlands til þriggja ára. Á árinu var undirritaður samningur milli Mýflugs og Norlandair um sölu á þremur flugvélum í flota Mýflugs, varahlutum tengdum seldum vélum, fasteign og eignarhlutum í félögunum Hangar 13 ehf. og Arctic Maintenance ehf. Keyptir varanlegir rekstrarfjármunir námu 918 milljónum og kaup á hlutabréfum námu 306 milljónum. Eignir voru bókfærðar á 3.566 milljónir um áramótin og eigið fé nam 1.741 milljón en hlutafé var aukið um 399 milljónir króna á árinu. KEA eignir eiga 45,5% hlut í félaginu og Air Greenland A/S 41,5% hlut. Flugfélag Íslands, dótturfélag Icelandair, á 5,7% hlut í Norlandair, og TVG-Zimsen ehf., dótturfélag Eimskips, á 2,8% hlut. Steindór Kristinn Jónsson, sem situr í stjórn flugfélagsins, á 4,5% hlut. Arnar Friðriksson er framkvæmdastjóri Norlandair. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .