Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Flugvirkjar horfa til ófaglærðra

Read Full Article →

Yfirvofandi verkfall flugvirkja Icelandair mun ekki hafa mikil áhrif á ferðir Hrafnanna. Það mun hins vegar hafa mikil áhrif á íslenskt efnahagslíf, eins og gefur að skilja, enda gríðarlegir hagsmunir í húfi. Óþarft er að fjölyrða um það. Eigi að síður kemur Hröfnunum á óvart að ríkisstjórnin hafi ekki enn gefið til kynna að hún muni ekki leyfa fámennri stétt vel launaðra starfsmanna skráðs einkahlutafélags að stöðva stóran hluta farþega- og vöruflutninga til og frá landinu. Fjallað er um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Þar er haft eftir Óskari Einarssyni, formanni Flugvirkjafélags Íslands, að laun þeirra stétta sem flugvirkjar beri sig saman við hafi hækkað um 50% frá árinu 2019 á meðan laun flugvirkja hafi hækkað um 27%. Munurinn er 23 prósentustig. Óskar vill hins vegar ekki nefna hvaða stéttir þetta eru en tekur fram að talan sé ekki úr lausu lofti gripin. Grunnlaun umræddra hópa hafi hækkað langt umfram grunnlaun flugvirkja á tímabilinu. Óskar Einarsson Hröfnunum þykir það áhugavert. Það er nefnilega ekki sérstaklega erfitt að finna launahópa sem hafa fengið 50% hækkun frá árinu 2019 — og jafnvel talsvert meira. Grunnlaun í ýmsum neðri launaflokkum Eflingar hjá Reykjavíkurborg hafa til dæmis hækkað um 55–64% frá árinu 2019. Hækkanir lægstu taxta á almennum vinnumarkaði eru einnig af þessari stærðargráðu. Það segir hins vegar lítið um kjör flugvirkja nema þessir hópar séu í raun þeir sem þeir bera sig saman við. Um það vill formaður Flugvirkjafélagsins ekki upplýsa. Kannski er ástæða fyrir þeirri feimni. Hrafnarnir eru að minnsta kosti að sannfærast um að þessi tilraun með rekstur eina starfsmannafélags heimsins sem skráð er á hlutabréfamarkað hafi mistekist með öllu. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.

Share this article