Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stuðningsmenn Víkinga unnu skemmdarverk á KR-vellinum

Read Full Article →

Stórleikur Víkings Reykjavíkur og KR fer fram í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Stuðningsmenn Víkinga frömdu skemmdarverk á KR-svæðinu er þeir máluðu varamannabekki og stúku með rauðum litum. Skemmdarverkin virðast hafa verið framin í skjóli nætur á Meistaravöllum, heimavelli KR-inga. Málningin var ekki fullþornuð um níuleytið í morgun. Starfsmenn KR vinna nú að því að þrífa málninguna af. Máluðu orðin „Aðeins eitt stórveldi“ Varamannaskilti og stúka KR voru máluð með rauðum lit Víkinga. Stuðningsmenn Víkings máluðu yfir KR-skiltið á varamannabekknum og máluðu stafina Vikes aftast á stúku KR. Vikes er gælunafni Víkinga. Þá var stigi stúkunnar málaður alla leið niður að velli og setningin „Aðeins eitt stórveldi“ máluð ofan á varamannabekkina tvo. Í aðdraganda úrslitaleiks Víkings og Breiðabliks árið 2024 máluðu stuðningsmenn Blika trépallettur grænar í skjóli nætur. Tveir lögreglubílar hafa komið á KR-svæðið í morgun til að athuga verksummerki og aðstæður. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og búist er við að hátt í 3.000 manns verði á leiknum. KR-ingar hafa sett upp auka áhorfendapalla á völlinn. Víkingar eru í fyrsta sæti með átta stiga forskot á KR sem er í öðru sæti. Viðtal við Pálma Rafn Pálmason framkvæmdastjóra þar sem hann ræðir stórleikinn og umgjörðina birtist innan skamms. Verða fleiri en á þeim mest sótta fyrir ári? 26. júlí 2025 sneri KR aftur á Meistaravelli eftir fjarveru vegna lagningu nýs gervigrass. Þá mættu 3.107 manns og sáu Breiðablik og KR gera 1-1 jafntefli. Það var best sótti leikur tímabilsins 2025. Best sótti leikurinn á tímabilinu hingað til er KR - Valur 26. maí er KR vann 3-1 sigur. Þar á eftir er upphafsleikur Bestu deildarinnar, þegar Víkingur og Breiðablik mættust í uppseldum leik í Fossvogi. Þá mættu 2.200 manns.

Share this article