Nýr alrafmagnaður Mercedes-Benz GLC sportjeppi var frumsýndur hjá bílaumboðinu Öskju um helgina. GLC dregur allt að 715 kílómetra samkvæmt WLTP-staðlinum og nýtir 800 volta hleðslukerfi sem styttir hleðslutíma verulega. Rafmótorar skila sportjeppanum alls 489 hestöflum og er hámarkstog 800 Nm. Sportjeppinn er einnig aðeins 4,3 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Þá býður GLC jafnframt upp á allt að 2.400 kg dráttargetu. Nýr GLC kemur með nýja MB.OS-stýrikerfinu frá Mercedes-Benz þar sem gervigreind er nýtt til að gera aksturinn snjallari og persónulegri. Með Digital Extras-appinu tengist ökumaðurinn svo bílnum í gegnum snjallsíma og getur meðal annars fylgst með hleðslu, forstillt hitastig og nálgast upplýsingar um bílinn í rauntíma. Meðal staðalbúnaðar í bílnum má nefna MBUX-snjallkerfi með raddstýringu, 360° myndavél, íslenskt leiðsögukerfi, glerþak með SKY CONTROL, rafdrifnar sætastillingar með minni sem og háþróuð aksturs- og öryggiskerfi. Mercedes-Benz fagnar jafnframt 140 árum af nýsköpun á árinu og segir þýski lúxusbílaframleiðandinn að nýr GLC marki mikilvægt skref í áframhaldandi þróun vörumerkisins.