Þetta er fjölhæfur og rúmgóður jepplingur frá lúxusbílaframleiðandanum í Stuttgart. Bíllinn býður allt að 614 km drægni samkvæmt WLTP og kemur með 4MATIC fjórhjóladrifi. Með möguleika á fimm eða sjö sætum, góðu farangursrými og sveigjanlegum lausnum hentar GLB jafnt í daglegum akstri sem og í lengri ferðir. GLB kemur vel búinn bæði hvað varðar þægindi og öryggi. Meðal staðalbúnaðar er allt að 614 km drægni, 4MATIC-fjórhjóladrif, LED-framljós með háþróaðri ljósastýringu og bílastæðaaðstoð að framan og aftan. Einnig er bíllinn búinn MBUX-snjallkerfi með snerti- og raddstýringu, íslensku leiðsögukerfi og rafdrifnum sætastillingum með minni. Auk þess má nefna háþróuð akstursog öryggiskerfi, 360° myndavél, Digital Extras-snjallforrit, panoramic-glerþak og 800V hleðslukerfi með allt að 320 kW DC hleðslugetu. GLB kemur með nýju MB.OSstýrikerfi og Digital Extras-appinu sem tengir þig við bílinn. Þar er meðal annars hægt að fylgjast með hleðslustöðu, stilla hitastig og fá leiðsögn beint í símanum. Fréttin birtist fyrst í sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar .